ÞÝS 103 Framburður og orðaforði
Áfangalýsing
Í upphafi verða kynnt nokkur meginatriði um þýskumælandi lönd (svo sem lega, stærð og íbúafjöldi), helstu samskipti milli þeirra og Íslands (t.d. verslun, ferðamennska og framhaldsnám) og skyldleiki íslensku og þýsku. Síðan er unnið með einfalda texta sem tengjast reynsluheimi nemendanna. Lögð er megináhersla á þjálfun framburðar, uppbyggingu og notkun orðaforða um nánasta umhverfi, munnlega og skriflega tjáningu, hlustun og grunnatriði málfræðinnar sem nauðsynleg eru til að mynda einfaldar aðalsetningar og spurningar.
Lesa meiraÞÝS 203 Orðaforði og málfræði
Áfangalýsing
Orðaforði og málfræðiatriði, sem komið hafa fram í undanfaranum, eru rifjuð upp og sett í nýtt samhengi, þ.e. bætt er við orðaforða, bæði virkum og óvirkum, svo og málfræði. Áfram er lögð sérstök áhersla á samtalsæfingar í para- og/eða hópvinnu. Nemendur eru nú hvattir til að búa sjálfir til samtöl, bæði munnlega og skriflega. Unnið er m.a. með texta sem varpa ljósi á daglegt líf unglinga og nokkrar helstu venjur og siði hjá þýskumælandi þjóðum. Nemendur fá innsýn í minnistækni og læra að tengja saman skyld orð málfræðilega og merkingarlega.
Lesa meiraÞÝS 303 Orðaforði og samtalsæfingar
Áfangalýsing
Orðaforði, sem komið hefur fram í undanförum, er lítillega rifjaður upp. Áfram er áhersla á samtalsæfingar í para- og/eða hópvinnu og nemendur nú látnir segja skoðanir sínar á málefnum. Lögð er áhersla á að nemendur fái innsýn inn í aðstæður ungs fólks í þýskumælandi löndum hvað snertir nám og atvinnuhætti. Í umfjöllun um Landeskunde er fjallað um skiptingu og sameiningu Þýskalands en þetta eru atriði sem eru forsenda skilnings á núverandi þjóðfélagsaðstæðum.
Lesa meiraÞÝS 403 Orðaforði daglegs lífs
Áfangalýsing
Orðaforði og málnotkunarreglur, sem komið hafa fram í undanförum, eru lítillega rifjaðar upp og þjálfaðar eftir því sem þurfa þykir. Jöfn áhersla er nú á munnlega tjáningu og skriflega færni með almennum orðaforða um daglegt líf í víðum skilningi. Aukin áhersla er lögð á umfjöllun um valin málefni líðandi stundar sem eru í fréttum erlendis og/eða hér á landi. Fjallað er um sambandslönd Þýskalands og valið efni er tengist þeim sérstaklega.
Lesa meiraÞÝS 503 Málefni líðandi stundar
Áfangalýsing
Lögð er áhersla á fjölbreytni í textavali og munnlega og skriflega beitingu málsins í æfingum. Unnið er að hluta í þemavinnu, þ.e. notaðir eru textar og annað kennsluefni af mismunandi gerð þar sem fjallað er á ýmsa vegu um sama málefnið, t.d. umhverfi, vandamál og leiðir að lausnum þeirra. Að hluta eru textar valdir af nemendum þannig að efnið standi þeim nær og sé í samræmi við áhugasvið þeirra. Auk þess er fjallað nokkuð um málefni líðandi stundar í þýskumælandi löndum.
Lesa meiraÞÝS 603 Greining á textum
Áfangalýsing
Öllum þáttum, sem nemendur hafa fengið þjálfun í á fyrri stigum þýskunámsins, er haldið við. Í þessum áfanga er lögð áhersla á að nemendur læri að meta texta og tengja sjálfir upplýsingar úr mismunandi textum og gera grein fyrir þeim. Í upphafi er notað efni sem nemendur skilja frekar auðveldlega. Síðan er unnið út frá misþungum textum sem eru krefjandi ýmist með tilliti til innihalds eða forms.
Lesa meiraÞÝS 703 Greining á textum og hlustunarefni
Áfangalýsing
Áfram er haldið að þjálfa nemendur í því að greina og meta texta og myndefni, en núna er einnig farið að greina hlustunarefni, þ.e. að átta sig á því hvort í töluðu erindi sé miðlað upplýsingum, skoðunum lýst eða viðhorfum. Munnleg og skrifleg tjáning er æfð en núna er einnig lögð áhersla á að færa rök fyrir máli sínu. Í þemavinnu er fjallað um mállýsku- og menningarmun þýskumælandi landa.
Auk þess er tekið efni (texti, tón- eða myndefni), sem nemendur fá að velja að hluta sjálfir og sem er hraðlesið, aðallega í þeim tilgangi að nemendur njóti eigin kunnáttu án þess að íþyngja þeim með öðrum verkefnum tengdum efninu en að segja í stuttu erindi (u.þ.b. 5-10 mín.) frá því sem þeir hafa fengist við.
Lesa meiraÞÝS 803 Mat á textum og myndefni
Áfangalýsing
Í þessum áfanga er lögð áhersla á að nemendur nái nokkurri leikni í að færa rök fyrir máli sínu. Áframhaldandi þjálfun í því að greina og meta mismunandi texta og myndefni og tjá eigin skoðun munnlega og skriflega er forsenda þeirrar leikni. Auk efnis, sem kennarinn velur, er einnig í þessum áfanga tekið efni (texti, tón- eða myndefni) sem nemendur fá að velja að hluta sjálfir. Einnig er notað hraðlesið efni, aðallega í þeim tilgangi að nemendur njóti eigin kunnáttu án þess að íþyngja þeim með öðrum verkefnum tengdum efninu en að segja í stuttu erindi (u.þ.b. 5-10 mín.) frá því sem þeir hafa fengist við.
Lesa meira