Þýska

ÞÝS 303 Orðaforði og samtalsæfingar

Undanfari: ÞÝS 203

Áfangamarkmið
Nemandi
Hlustun
geti skilið öll almenn fyrirmæli kennara á þýsku í kennslustofunni
geti skilið daglegt talmál þegar talað er við hann hægt og skýrt með almennum algengum orðaforða um málefni er varða daglegt líf, umhverfi og líðan
geti greint megininntak orðræðu um efni sem verið hefur til umfjöllunar þegar talað er á eðlilegum hraða við aðstæður þar sem hljóð í umhverfi torvelda ekki skilning
Lestur
hafi aukið þjálfun sína í að bæta nýjum orðaforða við þann sem fyrir er
geti lesið til skilnings létta texta með almennum orðaforða er tengjast daglegu lífi í starfi og leik
geti lesið og skilið meginefni lengri texta og stuttra ljóða með almennum orðaforða
geti dregið út lykilorð til glósunar
geti nýtt sér orðabækur við upplýsingaöflun
Tal
hafi á valdi sínu að nota eingöngu þýsku í öllum almennum samskiptum sínum við kennara í kennslustofunni nema þegar flókinna útskýringa er þörf
geti tjáð sig munnlega í einföldum setningum, óhræddur og af nokkru öryggi, um afmarkað efni sem hefur verið til umfjöllunar
geti tjáð sig um myndir eða stuttar myndasögur
geti tjáð persónulega afstöðu til málefna sem tekin hafa verið fyrir í áfanganum, sagt skoðanir sínar á þeim og beitt af nokkru öryggi orðasamböndum sem nauðsynleg eru til almennra skoðanaskipta
geti beitt málnotkunarreglum nokkuð rétt í munnlegri orðræðu
Ritun
geti tjáð sig skriflega með réttri stafsetningu í aðal- og aukasetningum um efni sem verið hefur til umfjöllunar
geti skrifað persónuleg sendibréf á viðeigandi hátt (ávarp, kveðjur) um efni sem tengist honum sjálfum og atburðum í daglegu lífi, persónulýsingum, fyrirætlunum og væntingum
geti skrifað stuttan útdrátt úr lesinni sögu
geti tjáð sig skriflega um myndir eða stuttar myndasögur
geti beitt málnotkunarreglum rétt í æfingum af mismunandi gerð

Efnisatriði
Orðaforði
Áfram er unnið með orðaforða daglegs lífs, bæði virkan og óvirkan, sem er dýpkaður og aukinn. Fjallað er um fjölskylduna í víðu samhengi, að takast á við mismunandi skoðanir á málefnum er tengjast daglegu fjölskyldulífi, að lýsa persónueinkennum, vonum og reynsluheimi ungs fólks almennt. Fjallað er t.d. um nám, atvinnumöguleika og afþreyingu.
Textar og annað kennsluefni
Lesefni er aukið og lesa nemendur nú 1-2 léttlestrarbækur sem eru hraðlesnar, auk annarra valinna texta (t.d. sem tengjast Landeskunde-umfjöllun) eða ljóða eftir þýskumælandi höfunda. Æskilegt er að efni léttlestrarbókanna höfði á einhvern hátt til nemenda. Nemendur vinna sérstök verkefni með hjálp þýsk-íslenskrar orðabókar og fá einnig fyrstu kynni af notkun þýsk-þýskrar orðabókar og vinna sérstök verkefni henni tengd.
Málfræðiatriði
Málfræðiatriði, sem komið hafa fyrir í undanförum, eru rifjuð lítillega upp, sérstaklega sagnir því að nú bætist við núliðin tíð hafi hún ekki komið fyrir í undanfara, þátíð núþálegra sagna, helstu afturbeygðar sagnir og nokkrar helstu sagnir með forsetningum í föstum orðasamböndum. Beyging hliðstæðra lýsingarorða er þjálfuð, nokkrar aukatengingar kynntar og þjálfaðar eftir því sem kennsluefni gefur tilefni til og þar af leiðandi er staða sagna í aukasetningum tekin fyrir og þjálfuð.

Námsmat
Nemendur eru símetnir í framförum sínum og tekið er tillit til allra færniþátta. Námsmat í munnlegri færni getur bæði átt sér stað í venjulegum kennslutímum og í sérstöku munnlegu prófi í lok áfangans. Námsmatið endurspegli þjálfun færniþátta í kennslu, þ.e. nokkurn veginn jöfn áhersla er á alla þætti. Auk þess er ástundun einnig metin þar sem stöðug þjálfun er mikilvæg til þess að námsatriði festist í langtímaminni og öryggi og tilfinning fyrir málinu í heild skapist. Nemendum hafi í upphafi áfangans verið gerð grein fyrir þeim atriðum sem matið byggist á.

Dæmi um kennsluleiðir
Til að ná markmiðum áfangans væri t.d. heppilegt
að fyrirmæli kennara til nemenda séu eingöngu á þýsku nema þegar flókin atriði, t.d. málfræðiútskýringar, kalla á annað (hlustun)
að nemendur tjái sig sem mest á þýsku í öllum almennum samskiptum sínum við kennara (tal)
að kennari leggi fyrir fjölbreytilegar æfingar er þjálfi markvisst þann orðaforða sem verið er að fjalla um hverju sinni og að þær málfræði- og málnotkunarreglur, sem koma nú nýjar inn, séu reglulega þjálfaðar munnlega og skriflega (orðaforði/málfræði/tal)
að samtalsæfingar og/eða hlutverkaleikir skipi stóran sess í þjálfun nemenda í málnotkun og skoðanaskiptum við samnemendur; heppilegt væri að gefa nemendum upp helstu orðasambönd sem nauðsynleg eru til að tjá skoðanir og setja t.d. á veggspjald sem nemendur geta ætíð litið á og því vanist notkun þeirra (tal)
að áfram sé unnið með efni af hljóm- eða myndbandi þar sem talað er skýrt en á eðlilegum hraða og nemendur þannig áfram þjálfaðir í hlustun í fjölbreyttum tilgangi (hlustun)
að þær léttlestrarbækur, sem valdar eru, séu meðhöndlaðar þannig að innihald þeirra veki áhuga nemenda; að varast t.d. að umfjöllun um innihaldið verði of ítarleg og langdregin en hafa ber í huga að tíminn leyfir ekki ítarlega umfjöllun um hverja bók, heldur er ætlunin frekar að nemendur hraðlesi þær og vinni síðan stutt áhugavekjandi verkefni úr innihaldi þeirra, allt eftir því hvað innihaldið býður upp á hverju sinni, t.d. að nemendur
spinni út frá lykilorðum/lykilsetningum hugsanlega atburðarás eða gang sögunnar áður en lestur hefst
leiti við lesturinn eftir ákveðnum atriðum sem þeir hafa fyrirmæli um (t.d. í spurningum áður en þeir hefja lesturinn)
skrifi stuttan útdrátt úr efni sögunnar
skrifi persónulýsingu um valdar persónur sögunnar (lestur/orðaforði/ritun)
að nemendur fái til lestrar og umfjöllunar ljóð mismunandi tegundar eftir þýskumælandi höfunda, velti fyrir sér innihaldi þeirra eða orðavali höfunda; mikilvægt er að kennari velji ljóðin með mismunandi tilgang í huga, t.d. ljóð sem eru skemmtileg hvað orðaval eða flutning varðar og leyfi nemendum að fjalla um þau frá ýmsum sjónarhornum; einnig væri kjörið að velja til umfjöllunar ljóð sem vel eru fallin til að hreyfa við tilfinningum eða skoðunum nemenda; ljóð sem veita þeim tilefni til skoðanaskipta (lestur/orðaforði/tal)
að nemendur skrifi örstutt einföld "ljóð" um afmarkað efni eða búi til orðaleiki með orðum sem ríma eða eru merkingarlega/málfræðilega tengd (orðaforði/ritun)
að nemendur skrifi persónulegt sendibréf á þýsku til náins vinar; hentugt væri að kennari stýrði vinnu nemenda með því að láta þá velja ákveðin fjölbreytt efni að skrifa um, t.d. eina viðburðaríka helgi eða annað er hentar hverju sinni (ritun)
að kennari láti nemendur skrifa frásögn (eins langa og þeir mögulega geta) í kennslustund um ákveðið efni með orðaforða sem er þeim kunnur; heppilegt væri að nemendur hefðu aðgang að öllum helstu lykilorðum, sem nota þarf, t.d. á töflu eða á glæru; nauðsynlegt væri að benda nemendum á að hugsa ekki of mikið um málfræðilega nákvæmni í þessum skrifum, heldur frekar um að koma sem mestu á blað; að "ryðja úr sér"; gott væri að kennari tæki afraksturinn og gæfi þeim síðan t.d. í næstu kennslustund færi á að endurvinna frásagnir sínar með hjálp orðabóka (ritun)
að nemendur fái á fjölbreyttan og lifandi hátt innsýn inn í sögulega skiptingu Þýskalands og sameininguna; vel til fallið væri að nota myndbönd og veita nemendum innsýn inn í þróun stjórnmála; að kynna þeim muninn á lífskjörum fólks í löndunum tveimur fyrir skiptingu og e.t.v. afstöðu fólks í dag til þjóðfélagsmála og þróunarinnar sem orðið hefur eftir sameininguna; upplagt væri t.d. að tengja þetta umfjöllun um ungt fólk í Þýskalandi í dag, atvinnuhætti og nám (Landeskunde)
að kennari velji texta t.d. úr tímaritum er snerta á einhvern hátt nám, störf, áhugamál og væntingar ungs fólks í þýskumælandi löndum (Landeskunde)
að kennari leggi fyrir orðabókaverkefni, bæði með þýsk-íslenskri orðabók og kynni nemendum einnig þýsk-þýska orðabók og útbúi verkefni henni tengd; ef ekki eru til nægilegar birgðir orðabóka innan skólans þá væri vel hugsanlegt að skipta nemendum í hópa þar sem einn hópur vinnur hverju sinni að orðabókaverkefni en hinir sinna öðrum verkefnum á meðan (orðaforði)

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur