Þjóðhagfræði
ÞJÓ 103 Almenn þjóðhagfræði
Áfangamarkmið
Nemandi
þekki grundvöll hagfræðinnar sem fræðigreinar, meginviðfangsefni og grundvallarspurningar
þekki helstu einkenni markaðshagkerfis og blandaðs hagkerfis
þekki grunneiningar hagkerfisins og meginhlutverk þeirra
þekki til lögmálsins um minnkandi afrakstur í framleiðslu og útskýri áhrif þess á kostnaðarmyndun í framleiðslunni
þekki lögmál markaðarins og útskýri meginþætti verðmyndunar á markaði
reikni út markaðsjafnvægi og verðteygni út frá gefnum stærðfræðilegum forsendum um eftirspurn og framboð
þekki til helstu aðila á vinnumarkaði og þeirra þátta er mestu varða í samskiptum þeirra og almennri launamyndun
þekki hringrás opins, blandaðs hagkerfis
þekki til ráðstöfunaruppgjörs þjóðhagstærða
skýri þann mun sem er á vergum og hreinum hagstærðum, þjóðarframleiðslu og landsframleiðslu, markaðsverði og þáttaverði
reikni út þjóðhagstærðir á föstu verðlagi og hlutfallslegar breytingar á milli ára
þekki helstu tekjuhugtök og aðferðir við að skoða tekjuskiptingu
þekki til helstu umsvifa hins opinbera í efnahagslífinu og aðferða til fjármögnunar þeirra
þekki til helstu aðila á peningamarkaði, þekki hlutverk seðlabanka og útskýri hvaða þættir ákvarða peningaframboð, peningaeftirspurn og þar með vaxtastigið
þekki til helstu ákvörðunarþátta utanríkisviðskipta, svo sem kenninga um hlutfallslega og hreina hagkvæmni
þekki til greiðslujafnaðar og samsetningar hans með sérstakri áherslu á viðskiptajöfnuð
þekki til mælikvarða á erlenda skuldasöfnun og greiðslubyrðar af erlendum lánum
þekki helstu áhrifaþætti nafngengis gjaldmiðla og tilhögun við skráningu á gengi íslensku krónunnar
þekki hugtakið hagvöxtur, helstu ákvörðunarþætti og vanda við mat á honum, m.a. með tilliti til umhverfisvandamála
þekki til helstu vandamála í efnahagslífinu, svo sem verðbólgu, atvinnuleysis og erlendrar skuldasöfnunar
öðlist skilning á efnahagslegu samhengi í þjóðfélaginu
greini daglega efnahagsumræðu út frá faglegu sjónarmiði, t.d. notkun hugtaka og meðferð hagstærða
verði vanur að beita upplýsingatækni við upplýsingaöflun og lausn verkefna
Efnisatriði
Skortur, val, fórnarkostnaður, framleiðsla, framleiðsluþættir, eftirspurn, framboð, markaðsjafnvægi, teygni, heimili, fyrirtæki, vinnumarkaður, markaðshagkerfi, blandað hagkerfi, efnahagshringrás, þjóðhagsreikningar, þjóðartekjur, þjóðhagslegur sparnaður, fjármunamyndun, einkaneysla, samneysla, skattar og fjármál hins opinbera, peningamarkaður, vextir, utanríkisviðskipti, gengi, hagvöxtur, verðbólga, atvinnuleysi.
Námsmat
Skortur, val, fórnarkostnaður, framleiðsla, framleiðsluþættir, eftirspurn, framboð, markaðsjafnvægi, teygni, heimili, fyrirtæki, vinnumarkaður, markaðshagkerfi, blandað hagkerfi, efnahagshringrás, þjóðhagsreikningar, þjóðartekjur, þjóðhagslegur sparnaður, fjármunamyndun, einkaneysla, samneysla, skattar og fjármál hins opinbera, peningamarkaður, vextir, utanríkisviðskipti, gengi, hagvöxtur, verðbólga, atvinnuleysi.