Þjóðhagfræði

ÞJÓ 103 Almenn þjóðhagfræði

Áfangalýsing

Kynnt eru grunnhugtök og meginviðfangsefni hagfræðinnar. Fjallað er um grunneiningar hagkerfisins og samspil þeirra í markaðsþjóðfélagi. Hringrás efnahagslífsins er útskýrð og fjallað um helstu hagstærðir þjóðarbúsins og innbyrðis tengsl þeirra. Meginþættir í efnahagsþróun eru teknir fyrir og hagræn vandamál skoðuð með dæmum úr íslensku efnahagslífi.

Kynnt er margvísleg framsetning á hagfræðilegu efni. Nemendur fá þjálfun í að lesa úr línuritum og innsýn í notkun hlutfallareiknings, vísitalna, vegins meðaltals og fleiri algengra aðferða við vinnslu á hagfræðilegum upplýsingum.

Lesa meira
 

ÞJÓ 203 Hagstjórn

Áfangalýsing

Áfanginn miðar að því að auka skilning nemandans á starfsemi þjóðarbúsins og hreyfiöflum efnahagsþróunar. Innra samhengi í hagkerfinu er skýrt með hjálp efnahagshringrásarinnar og með einföldum líkönum. Fjallað er um markmið hagstjórnunar og helstu hagstjórnartæki. Kynntar eru meginstefnur og straumar sem tengjast hagfræði þjóðarbúsins. Fjallað er um markaðskerfið og nokkur grundvallareinkenni þess. Hegðun fyrirtækja í mismunandi samkeppnisformum er skoðuð og fjallað um áhrif fullkominnar og ófullkominnar samkeppni á velferð neytenda. Komið er inn á kenningar um ytri áhrif og markaðsbresti með áherslu á umhverfisvandamál sem skapast af framleiðslu og neyslu í iðnvæddum samfélögum.

Lesa meira
 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur