STÆ 102 Jöfnur og hlutföll
Áfangalýsing
Lagður er grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði, nákvæmni í framsetningu, röksemdafærslum og lausnum verkefna og þrauta. Meginviðfangsefni eru upprifjun á talnameðferð og jöfnur. Enn fremur er fjallað um hnitakerfið og jöfnu beinnar línu. Áhersla er lögð á að varpa ljósi á hlutfallshugtakið frá mörgum hliðum.
Auk styttri verkefna vinni nemendur a.m.k. eitt samvinnuverkefni eða ritgerð, t.d. um hagnýtingu stærðfræðinnar í daglegu lífi.
Lesa meiraSTÆ 103 Jöfnur, rúmfræði og hlutföll
Áfangalýsing
Lagður er grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði, nákvæmni í framsetningu, röksemdafærslum og lausnum verkefna og þrauta. Meginviðfangsefnin eru á sviði rúmfræði en jafnframt er talnameðferð rifjuð upp og jöfnur. Fjallað er um nokkur hugtök evklíðskrar rúmfræði og hlutverk hennar í vestrænni menningu, hnitakerfið og jöfnu beinnar línu. Áhersla er lögð á að varpa ljósi á hlutfallshugtakið frá mörgum hliðum.
Auk styttri verkefna vinni nemendur a.m.k. eitt samvinnuverkefni eða stutta ritgerð, t.d. um rúmfræði í sögulegu eða menningarlegu samhengi.
Lesa meiraSTÆ 122 Rúmfræði
Áfangalýsing
Lagður er grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði, nákvæmni í framsetningu, röksemdafærslum og lausnum verkefna og þrauta. Meginviðfangsefnin eru á sviði rúmfræði. Fjallað er um nokkur hugtök evklíðskrar rúmfræði og hlutverk hennar í vestrænni menningu. Áhersla er lögð á að varpa ljósi á hlutfallshugtakið.
Auk styttri verkefna vinni nemendur a.m.k. eitt samvinnuverkefni eða ritgerð, t.d. um rúmfræði í sögulegu eða menningarlegu samhengi.
Lesa meiraSTÆ 192 Jöfnur og hlutföll, fyrri hluti
Námsefni grunnskóla er rifjað upp, aðallega meðferð heilla talna og brota og prósentureikningur. Lagður er grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði, nákvæmni í framsetningu, röksemdafærslum og lausnum verkefna og þrauta. Meginviðfangsefni eru upprifjun á talnameðferð og jöfnur. Farið er yfir fyrri hluta áfangans STÆ 102 sem er aðallega talnareikningur, einföld algebra og jöfnur. Lesa meira
STÆ 193 Undirbúningsáfangi fyrir frekara nám
Námsefni grunnskóla er rifjað upp, aðallega meðferð heilla talna og brota og prósentureikningur. Lagður er grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði, nákvæmni í framsetningu, röksemdafærslum og lausnum verkefna og þrauta. Meginviðfangsefni eru upprifjun á talnameðferð og jöfnur. Lesa meira
STÆ 202 Algebra og föll A
Áfangalýsing
Í áfanganum er lagður grundvöllur að skilningi á rauntalnakerfinu og áhersla lögð á dýpkun fallhugtaksins ásamt góðri færni í algebru. Ennfremur er fjallað um ójöfnur, ýmis algeng föll og algebru í sögulegu samhengi. Auk smærri verkefna vinni nemendur a.m.k. eitt samvinnuverkefni eða ritgerð um efni tengt inntaki áfangans, t.d. um sögulegt efni.
STÆ 203 Algebra og föll
Áfangalýsing
Í áfanganum er lagður grundvöllur að skilningi á rauntalnakerfinu og fallhugtakinu ásamt góðri færni í algebru. Fjallað er um ýmsar gerðir jafna og ójafna og algebru og tugabrot í sögulegu samhengi.
Auk smærri verkefna vinni nemendur a.m.k. eitt samvinnuverkefni eða ritgerð um efni tengt inntaki áfangans, t.d. um sögulegt efni.
Lesa meiraSTÆ 292 Jöfnur og hlutföll, seinni hluti
Lagður er grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði, nákvæmni í framsetningu, röksemdafærslum og lausnum verkefna og þrauta. Meginviðfangsefni eru upprifjun á talnameðferð og jöfnur. Farið er yfir seinni hluta áfangans STÆ 102 og áhersla lögð á að varpa ljósi á hlutfallshugtakið frá mörgum hliðum. Enn fremur er fjallað um hnitakerfið og jöfnu beinnar línu. Unnið er með prósentur, vexti og veldi. Lesa meira
STÆ 303 Hornaföll, vigrar og talningarfræði
Áfangalýsing
Efni áfangans er vigrar og hornaföll, tengsl algebru og rúmfræði í hnitakerfi og kynning á talningarfræði. Enn fremur er fjallað um sögulega þróun hornafræði og hagnýtingu þekkingar á hornaföllum, m.a. við landmælingar.
Áhersla er lögð á að nemendur kynnist flatarmyndafræði í hnitakerfi og læri að sanna helstu reglur þar að lútandi og beita þeim. Valdar sannanir eru teknar til umfjöllunar. Auk styttri verkefna vinni nemendur a.m.k. eitt samvinnuverkefni eða ritgerð um efni tengt inntaki áfangans.
Lesa meiraSTÆ 313 Tölfræði og líkindareikningur I
Áfangalýsing
Fjallað er um töluleg gögn og myndræna framsetningu á þeim með myndritum, einkennistölur fyrir gagnasöfn og dreifingu og undirstöðuatriði líkindareiknings á endanlegu útkomurúmi, þar á meðal frumatriði talningar- og fléttufræði. Verkefni eru unnin með aðstoð reiknitækja og a.m.k. eitt verkefni er unnið í samvinnu nokkurra nemenda.
Lesa meiraSTÆ 403 Föll, markgildi og deildun
Áfangalýsing
Efni áfangans er um vísis- og lograföll, markgildi og deildun algengra falla. Fjallað er um deildun og markgildi í sögulegu samhengi og hagnýt verkefni sem leysa má með deildareikningi.
Áhersla er lögð á að nemendur fái góða innsýn í deildareikning og geti rökstutt helstu reglur þar að lútandi. Auk stuttra æfinga vinni þeir a.m.k. eitt samvinnuverkefni eða ritgerð um efni tengt inntaki áfangans.
Lesa meiraSTÆ 413 Tölfræði og líkindareikningur II
Áfangalýsing
Fjallað er um normlega dreifingu og aðrar líkindadreifingar, úrtök og tölfræðilegar ályktanir, fylgni o.fl. Nemendur vinna nokkur stærri verkefni einir og í samvinnu við aðra nemendur. Verkefnin eru unnin með aðstoð reiknitækja.
Lesa meiraSTÆ 503 Heildun, runur og raðir
Áfangalýsing
Efni áfangans er um heildun, deildajöfnur, runur og raðir. Auk þess að kenna ýmsar aðferðir við lausnir á verkefnum er lögð áhersla á hagnýtingu í ýmsum fræðigreinum. Gert er ráð fyrir að nemendur skili verkefnum reglulega. Skal lögð áhersla á skýra og skilmerkilega framsetningu.
Lesa meiraSTÆ 513 Strjál stærðfræði
Áfangalýsing
Efnissvið áfangans eru mengjafræði, rökfræði, talningarfræði, reiknirit og talnafræði. Náttúrlegar tölur eru sameiginlegt viðfangsefni þessara sviða. Allt efni áfangans er undirstaða undir tölvunarfræði en einnig aðra stærðfræði. Auk dæmareiknings skulu nemendur skila a.m.k. einu samvinnuverkefni eða stuttri ritgerð um valda þætti í námsefninu eða tengdu efni.
Lesa meiraSTÆ 523 Rúmfræði
Áfangalýsing
Meginefni áfangans er þrívíð rúmfræði, með og án hnitakerfis, og keilusnið. Gert er ráð fyrir að nemendur skili verkefnum reglulega. Auk dæmareiknings skulu nemendur skila a.m.k. einu samvinnuverkefni eða stuttri ritgerð um valda þætti í námsefninu eða tengdu efni.
Lesa meiraSTÆ 603 Yfirlitsáfangi
Áfangalýsing
Í áfanganum eru ýmis atriði eldra námsefnis tekin til athugunar við lausnir á verkefnum. Auk þess er bætt við ýmsu nýju efni og má þar nefna tvinntölur, fleiri gerðir deildajafna og frekari hagnýtingu heildareiknings. Gert er ráð fyrir að nemendur skili reglulega heimaverkefnum sem krefjast staðgóðrar þekkingar á námsefni fyrri áfanga. Í verkefnunum skal flétta saman eldra og yngra námsefni. Lögð skal áhersla á skýra framsetningu lausna.
Lesa meiraSTÆ 703 Stærðfræðigreining
Áfangalýsing
Fjallað er um rauntölur og fullkomleika þeirra, runur og raðir, föll, sér í lagi logra- og vísisföll, og notkun stærðfræðigreiningar við lausn á ýmsum hagnýtum verkefnum.
Gert er ráð fyrir að nemendur skili reglulega heimaverkefnum og skal lögð áhersla á skýra og skilmerkilega framsetningu.
Lesa meira