Stærðfræði
STÆ 193 Undirbúningsáfangi fyrir frekara nám
Flatarmyndir og rúmfræði
Áfangalýsing
Undanfari: enginn
Áfanginn er ætlaður nemendum á almennri braut sem hafa ekki staðist þær kröfur sem settar eru um nám í framhaldskóla.
Markmið áfangans er að nemendur læri undirstöðuatriði í grunnteikningu og flatarmálsfræði og þjálfist í að nota þau við lausn hagnýtra verkefna. Þeir kynnist notkun algengra mælitækja (málbands, gráðuboga, hallamáls) og temji sér vandvirkni, nákvæmni í framsetningu og öguð vinnubrögð.
Námsmat
Í áfanganum er fyrst og fremst leitast við að nota leiðsagnarmat í þeim tilgangi að nemandi fái upplýsingar um eigin styrkleika ásamt leiðbeiningum um hvernig hann getur bætt frammistöðu sína.
námsmat í áfanganum getur verið margvíslegt t.d. kennaramat, jafningjamat eða sjálfsmat. Matið getur byggst á könnunum, munnlegum verkefnum, skriflegum verkefnum einstaklings eða hópa.