Stærðfræði
STÆ 413 Tölfræði og líkindareikningur II
Undanfari: STÆ 313
Áfangamarkmið
Nemandi
geti nýtt einfalda líkindadreifingu sem líkan við útreikning líkinda
þekki grunnatriði úrtaksfræði, þar með talda meginmarkgildissetningu tölfræðinnar
kunni að nota úrtaksdreifingu við framsetningu tölfræðilegra ályktana
kunni að fara með hugtökin öryggisbil, öryggismörk, skekkjumörk, öryggisstig o.s.frv.
geti sett fram tilgátu og gert á henni viðeigandi tölfræðilegt próf
geti reiknað út fylgni milli tveggja breytna
geti túlkað fylgnistuðla
kannist við einföld hugtök línulegrar aðhvarfsgreiningar, s.s. að finna bestu línu gegnum gagnapunkta í sléttum fleti
geti nýtt sér tölfræðileg forrit við gagnavinnslu, prófanir og ályktanir
Efnisatriði
Útreikningar í tengslum við normlega dreifingu, t-dreifing. Meginmarkgildissetning tölfræðinnar. Úrtaksdreifing, öryggisbil, tilgátuprófanir og helstu fyrirvarar á tölfræðilegum ályktunum. Fylgniútreikningar, aðhvarfsgreining.
Námsmat
byggist á
verkefnum sem nemendur vinna í kennslustundum og utan þeirra og frammistöðu í kennslustundum
skriflegu prófi eða lokaverkefni þar sem reynir á þekkingu á efnisatriðum, færni í beitingu stærðfræðilegrar tækni, beitingu reiknitækja, skýra framsetningu, röksemdafærslu, skilning á röklegu samhengi og færni í að leysa verkefni