Stærðfræði

STÆ 403 Föll, markgildi og deildun

Undanfari: STÆ 303

Áfangamarkmið

Nemandi

  • hafi góðan skilning á raunföllum, nánar tiltekið
    kunni skilgreiningu á samskeytingu falla og geti skeytt saman einföld föll
    kunni skilgreiningar á hugtökunum eintækt, átækt og gagntækt fall
    kunni skilgreiningu á andhverfu falls, geti reiknað út andhverfur einfaldra falla og þekki sambandið milli grafs falls og andhverfu þess
    kunni veldareglur með rauntöluveldisvísi og geti beitt þeim við útreikninga
  • þekki til vísis- og lografalla, nánar tiltekið
    geti teiknað upp vísisföll með mismunandi grunntölum og þekki sambandið á milli grafs og stærðar grunntölunnar
    kunni almenna skilgreiningu á logra, sér í lagi náttúrlega logranum, kunni lograreglurnar og viti hvernig skipt er á milli logra með ólíkar grunntölur
    geti leyst jöfnur og ójöfnur þar sem vísis- og lograföll koma fyrir
    þekki hugtakið vísisvöxtur, geti leyst einföld dæmi um vaxtareikning og þekki dæmi um eðlisfræðileg fyrirbæri þar sem vísisvöxtur eða -hnignun kemur fyrir
  • geri sér grein fyrir markgildum falla, nánar tiltekið
    þekki hugtakið markgildi falls
    geti reiknað markgildi falls í gefnum punkti
    kunni reiknireglur um markgildi af summu, margfeldi og kvóta
    kunni klemmuregluna og geti beitt henni til þess að reikna út markgildi
    kunni að leiða út markgildið af sin x/x þegar x stefnir á 0
    þekki nokkrar tegundir óeiginlegra markgilda og geti reiknað þau
    kunni helstu reglur um óeiginleg markgildi
    kunni skilgreiningar á helstu tegundum aðfellna
    geti fundið formúlur fyrir aðfellur með því að reikna út óeiginleg markgildi
    geti rissað upp gröf falla með því að nýta sér þekkingu um aðfellur þeirra
  • kannist við samfelldnihugtakið, nánar tiltekið 
    kunni skilgreiningu á því að fall sé samfellt í punkti
    kunni reiknireglur um summu, margfeldi og kvóta samfelldra falla
    kunni reiknireglur um samskeytingu samfelldra falla
    kunni milligildisreglu og geti beitt henni til að sýna fram á tilvist jöfnulausna
    viti að samfellt fall tekur stærsta og minnsta gildi á lokuðu og takmörkuðu bili
  • kunni skil á deildareikningi, nánar tiltekið 
    kunni skilgreiningu á afleiðu í punkti og geti gefið myndræna lýsingu á henni
    kunni skilgreiningu á snertli við graf falls og geti fundið jöfnu snertilínunnar
    kunni skilgreiningu á hraða og hröðun
    kunni skilgreiningu á afleiðu og geti beitt henni til að reikna afleiður einfaldra falla
    geti leitt út formúlur fyrir afleiður línulegs falls, veldisfallsins með náttúrlegum veldisvísi, ferningsrótarfallsins og sínus- og kósínusfallanna
    geti sýnt fram á að deildanleg föll eru samfelld og kunni dæmi um samfelld föll sem eru ekki deildanleg
  • kunni helstu reiknireglur um deildun, nánar tiltekið 
    kunni reiknireglur um afleiður af summu, margfeldi og kvóta og geti leitt þær út
    kunni reiknireglu um afleiðu af samskeytingu tveggja falla og geti leitt hana út
    kunni reiknireglu um afleiðu andhverfu falls og geti leitt hana út
    geti leitt út afleiður af vísisföllum, veldisföllum með ræðum veldisvísi og lograföllum
    geti deildað flóknar samsetningar af föllum sem hafa þekktar afleiður
  • geti notað deildareikning til að kanna föll, nánar tiltekið 
    kunni skilgreiningu á hugtökunum staðbundin hágildi, lággildi og útgildi
    þekki samband staðbundins útgildis falls og afleiðu
    kunni skilgreiningu á hugtökunum vaxandi og minnkandi fall
    kunni meðalgildisregluna og geti leitt hana út
    þekki rúmfræðilega túlkun á formerki afleiðunnar
    þekki hugtakið beygjuskil
    geti teiknað gröf falla sem gefin eru með reiknireglu og rökstutt teikningarnar með markgildis- og deildareikningi
    geti fundið myndmengi falla og stærstu og minnstu gildi falla
    geti komið hagnýtum verkefnum um há- og lággildi í stærðfræðilegan búning og leyst þau
    þekki til sögulegrar þróunar markgildis- og deildareikninga

Efnisatriði 
Samskeyting falla. Eintækt, átækt og gagntækt fall. Andhverft fall. Vísisföll, lograföll og vísisvöxtur. Markgildi og samfelld föll. Deildun falla og könnun þeirra.
Dæmi um ítarefni: Jöfnulausnir með Newton-aðferð. L’Hôpital-regla.

Námsmat 
byggist á
verkefnum sem nemendur vinna í kennslustundum og utan þeirra
frammistöðu í kennslustundum og árangri á skyndiprófum
skriflegu prófi þar sem reynir á þekkingu á efnisatriðum, færni í beitingu stærðfræðilegrar tækni, skýra framsetningu, röksemdafærslu, skilning á röklegu samhengi og færni í að leysa verkefni

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur