Stærðfræði

STÆ 313 Tölfræði og líkindareikningur I

Undanfari: 6 fyrstu einingarnar (103 og 203 eða 102, 122 og 202)

Áfangamarkmið

Nemandi

  • kunni góð skil á undirstöðuhugtökum úr lýsandi tölfræði, nánar tiltekið
    geti fundið tíðnitöflur úr gefnu gagnasafni
    geti fundið hlutfallstíðni ákveðinna gilda í gagnasafni
    geti sett tíðnidreifingu fram með súluritum, stuðlaritum, skífuritum og línuritum
    geti fundið tíðnidreifingu fyrir gagnasafn með flokkaskiptingu og notað myndrit til þess að lýsa henni
    þekki skilgreiningar á helstu einkennishugtökum fyrir gagnasöfn, eins og tíðasta gildi, venjulegt meðaltal, vegið meðaltal og miðgildi, og geti reiknað út þessi gildi fyrir gefin gagnasöfn
    þekki skilgreiningar á ýmsum stærðum sem einkenna dreifingu talnasafns, eins og seilingu, meðalfrávik, staðalfrávik og hlutfallslegt frávik, og geti reiknað út þessar stærðir fyrir gefin gagnasöfn
  • hafi tamið sér fjölbreytt vinnubrögð og gagnrýnin viðhorf við vinnslu tölfræðilegra gagna, nánar tiltekið
    geti notað töflureikna og önnur tölvuforrit til að vinna úr tölfræðilegum gögnum
    kunni að vara sig á misbeitingu tölfræðinnar, t.d. í sambandi við prósentureikninga og sér í lagi varðandi myndræna framsetningu
    hafi kynnst því sem varast þarf þegar ályktanir eru dregnar af tölfræðilegum gögnum
    hafi tekið þátt í meðalstóru verkefni sem krefst samvinnu nokkurra nemenda þar sem safnað er tölfræðilegum gögnum, þau flokkuð og valin framsetning við hæfi í tölvutæku formi
  • kunni góð skil á líkindahugtakinu, nánar tiltekið 
    þekki hugtökin útkoma, atburður og útkomurúm
    geti talið kerfisbundið fjölda möguleika sem tilheyra tilteknum atburði
    kunni að fara með samantektir og umraðanir
    geti reiknað út líkindi á gefnum atburði í einföldu líkindarúmi
    þekki regluna um líkindi óháðra atburða
    þekki regluna um líkindi samatburða og sniðatburða
    geti beitt grundvallaratriðum um skilyrt líkindi
    þekki tvíliðudreifingu og tengsl hennar við Pascal-þríhyrninginn
    þekki normlega dreifingu og geti framkvæmt helstu útreikninga ef gefið er meðaltal og staðalfrávik slíkrar dreifingar
    kannist við fylgnihugtakið
    hafi einn eða í samvinnu við aðra nemendur unnið að verkefni um líkindareikning, t.d. þar sem bornar eru saman fræðilegar líkur og líkur leiddar af tilraunum

Efnisatriði 
Gagnasöfn, flokkun og einkennishugtök um þau. Tíðni og tíðnidreifing, myndrit. Dreifing og stærðir sem einkenna dreifingu gagnasafna. Helstu hugtök varðandi talningu, líkindi og líkindadreifingu.

Námsmat 
byggist á
verkefnum sem nemendur vinna í kennslustundum og utan þeirra
frammistöðu í kennslustundum og árangri á skyndiprófum
skriflegu prófi eða lokaverkefni þar sem reynir á þekkingu á efnisatriðum, færni í beitingu stærðfræðilegrar tækni, beitingu reiknitækja, skýra framsetningu, röksemdafærslu, skilning á röklegu samhengi og færni í að leysa verkefni

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur