Spænska

SPÆ 103 Málfræði og menning

Áfangamarkmið
Nemandi
Framburður
læri framburðarreglur og æfi framburð, nánar tiltekið
mismunandi framburð b, d, ð (dæmi: Barcelona, Valencia, dinero, hablado)
mismunandi framburð g-hljóða (dæmi: gustar, guerra, Gibraltar, gente, guisantes)
framburð k-hljóða (dæmi: cacao, cocina, cuchillo, quiosco, queso)
framburð þ-hljóða (dæmi: zapato, zorro, zumo, cepillo, cine)
framburð á j, ñ, rr, ll og ch hljóðleysi h helstu reglur um áherslur í spænsku
Orðaforði
byggi upp orðaforða um athafnir daglegs lífs og tileinki sér þann orðaforða sem er í kennslubókinni og þjálfaður er markvisst í kennslustundum, nánar tiltekið
orðaröð í setningum
beygingar reglulegra og afturbeygðra sagna í nútíð
beygingar helstu óreglulegra og hljóðskiptra sagna í nútíð
mun á sögnunum sem þýða vera: ser, estar, haber (hay)
lýsingarhátt nútíðar
nána framtíð (dæmi: ir a comprar)
sagnir svo sem gustar og apetecer
kyn og tölu nafnorða og lýsingarorða
ákveðinn og óákveðinn greini
fornöfn (spurnarfornöfn, persónufornöfn, ábendingarfornöfn og eignarfornöfn)
algengar forsetningar eins og a, en og de
Málfræði
læri grundvallaratriði í málfræði með íslenskt mál til hliðsjónar, nánar tiltekið
kurteisisreglur (dæmi: þéranir, þúanir, kveðjur og kynningar)
að lýsa sjálfum sér og öðrum
að tala um fjölskyldu sína, atvinnu og nánasta umhverfi
að þekkja helstu heiti yfir mat og drykk og bjarga sér í verslunum
tölur og að tjá sig um tíma (dæmi: nöfn árstíða og vikudaga, dagsetningar)
helstu aðferðir við glósugerð og minnistækni, svo sem að tengja saman skyld orð og orðflokka
Málskilningur - hlustun
skilji almenn orð og einfaldar setningar, nánar tiltekið
þegar viðmælandi talar hægt og skýrt með hléum um sjálfan sig og fjölskyldu sína
þegar viðmælandi talar hægt og skýrt með hléum um nánasta umhverfi
efni af hljóðböndum sem sniðið er fyrir byrjendur  
efni af hljóðböndum úr kennsluefni/kennslubók
Málskilningur - lestur
skilji allt það lesefni sem farið er í í tímum og geti unnið verkefni tengd því, nánar tiltekið
kunnugleg nöfn, orð og mjög einfaldar setningar
tilkynningar, auglýsingar og upplýsingar um einföld atriði daglegs lífs
texta sem tilheyra kennsluefni
Tjáning - samskipti
geti tekið þátt í einföldum samræðum við annað fólk, nánar tiltekið
beðið viðmælanda um að endurtaka og tala hægar
spurt og svarað einföldum spurningum varðandi grunnþarfir sínar eða um kunnugleg málefni
Tjáning - talað mál
geti notað þann orðaforða sem þjálfaður er í áfanganum, nánar tiltekið
myndað stuttar, einfaldar setningar og notað ýmis orðasambönd rétt
gefið upplýsingar um sjálfan sig (nafn, aldur, þjóðerni, starf, kyn, heimilisfang, símanúmer o.s.frv.)    
lýst útliti fólks og sjálfum sér
lýst kringumstæðum sínum og umhverfi
talað um menntun og tómstundir
Tjáning - ritað mál
tjái sig í rituðu máli og noti þann orðaforða sem þjálfaður er í áfanganum, nánar tiltekið
skrifi texta með því að styðjast við kennslubók
skrifi eftir upplestri
skrifi póstkort og afmælis- eða jólakveðjur
fylli út eyðublöð
skrifi stutt skilaboð
skrifi einfalt persónulegt bréf
geti gefið upplýsingar um sjálfan sig og lýst vinum og fjölskyldu
Menning
kynnist fjölbreytileika og víðfeðmi hins spænskumælandi heims, nánar tiltekið
hvar í heiminum spænska er töluð og geti nefnt þau lönd á spænsku
viti hvaða menningarþættir eru einkennandi fyrir þau lönd sem til umræðu eru og geti borið fordómalaust saman við eigin menningarheim

Námsmat
Nemendur eru símetnir í framförum sínum og tekið er tillit til allra færniþátta. Í námsmati er lögð jöfn áhersla á alla færniþættina. Því mætti til dæmis haga þannig að 40% sé frammistaða yfir önnina og 60% sé próf í annarlok.

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur