Spænska

SPÆ 103 Málfræði og menning

Áfangalýsing

Í áfanganum er lögð áhersla á grundvallaratriði í málfræði spænskrar tungu og menningu spænskumælandi þjóða. Einnig eru nemendur þjálfaðir í að tjá sig um almenn atriði daglegs lífs í ræðu og riti. Réttritun og framburður er æfður ásamt þjálfun í lesskilningi. Nemendur eru hvattir til að nota kennsluforrit á spænsku til að æfa sig í málfræði, orðaforða, framburði, réttritun og lesskilningi.

Lesa meira
 

SPÆ 203 Orðaforði og málfræði

Áfangalýsing

Megináhersla er á samtalsæfingar úr efni áfangans, bætt er við orðaforða og málfræði auk þess sem nemendur læra að nota aðrar tíðir sagna. Bætt er jafnt og þétt við óvirkan og virkan orðaforða. Nemendur eru hvattir til að búa sjálfir til samtöl sem tengjast lesefninu. Þeir lesa efni af menningarlegum toga og leysa verkefni tengd því. Nemendur ná leikni í að bjarga sér í spænskumælandi landi.

Lesa meira
 

SPÆ 303 Léttar bókmenntir og nytjatextar

Áfangalýsing

Nemendur öðlast leikni í að segja frá liðnum atburðum í þátíð og að endursegja lengri texta. Þeir lesa létta bókmennta- og nytjatexta og vinna verkefni, þýðingar og endursagnir úr þeim. Mikil áhersla er lögð á tileinkun orðaforða með notkun orðabóka (spænsk-spænskra m.a.) og talæfingar. Rík áhersla er lögð á daglegt talmál. Samskiptahæfni nemenda er þjálfuð markvisst.

Lesa meira
 

SPÆ 403 Skáldsögur og munnleg tjáning

Áfangalýsing

Lokið er við að fara yfir öll helstu grundvallaratriði spænskrar málfræði. Áhersla er á notkun viðtengingarháttar nútíðar og þátíðar og skildagatíðar. Orðasambönd, sem geta tekið með sér viðtengingarhátt og/eða framsöguhátt, eru tekin fyrir. Nemendur öðlast færni í réttri notkun þátíða. Stutt skáldsaga eða smásögur eru lesnar og verkefni unnin upp úr þeim. Munnleg tjáning er mikið æfð og reynt að festa í sessi virkan orðaforða. Nemendur kynna sér fjölbreyttan menningarheim hinna spænskumælandi þjóða og bera saman við sinn eigin. Æskilegt er að nemendur vinni þemaverkefni saman og kynni fyrir samnemendum sínum. Heimur Rómönsku Ameríku, bókmenntir og listir hins spænskumælandi heims eru helsta uppspretta orðaforða. Upplestur texta er æfður. Áhersla er lögð á ríkan orðaforða og nokkuð rétta málfræði.

Lesa meira
 

SPÆ 503 Saga spænskumælandi þjóða og þýðingar

Áfangalýsing

Upprifjun á öllum helstu atriðum spænskrar málfræði og úrvinnsla úr þeim. Nemendur lesa bókmenntir og kafla úr sögu Spánar og Rómönsku Ameríku. Blaðagreinar eru lesnar og verkefni unnin. Þýðingar eru unnar og endursagnir þjálfaðar í ræðu og riti. Nemendur skrifa ritgerðir og þjálfast í að verja skoðanir sínar og segja frá atburðum. Sérstök þemaverkefni að vali nemenda eru unnin og kynnt. Orðabækur fá meira vægi en áður.

Lesa meira
 

SPÆ 602 Bókmenntir og menning Spánar

Áfangalýsing

Þessi áfangi fjallar um spænskar bókmenntir og menningu. Kynntir verða helstu rithöfundar Spánar og listamenn (s.s. Cervantes, Lorca, Machado, Cela, Sender, Matute, Grandes, Gaite). Blöð og tímarit verða lesin, horft á kvikmyndir (s.s. eftir Saura, Almodovar, Treuba og fleiri) og hlustað á spæskt útvarpsefni. Nemendur velja sjálfir meginþemu áfangans og kynna vinnu sína reglulega, bæði munnlega og skriflega, og nýta sér þau gögn og gagnabanka sem aðgengilegir eru, einnig er lögð nokkur áhersla á þýðingar á stuttum bókmenntatextum. Nemendur eiga að geta rætt og ritað um verkefni sín á nokkuð góðri spænsku og nokkuð hratt og geta tekið þátt í allflóknum umræðum.

Málfræðivillur eru kannaðar og unnið út frá þeim í verkefnum nemenda. Lögð er áhersla á flóknari atriði málfræðinnar.

Lesa meira
 

SPÆ 612 Bókmenntir og menning Rómönsku Ameríku

Áfangalýsing

Þessi áfangi fjallar um rómansk-amerískar bókmenntir og menningu. Kynntir verða helstu rithöfundar spænskumælandi Ameríku, s.s. Asturias, Rulfo, Azuela, Paz, Esquivel, Carpentier, Borges, Cortazar, Garcia Marquez, Mistral, Neruda, Vallejo og Vargas Llosa. Blöð og tímarit verða lesin, horft á kvikmyndir frá einstökum löndum og efni þeirra rætt. Nemendur velja sjálfir meginþemu áfangans og kynna vinnu sína reglulega, bæði munnlega og skriflega, og nýta sér þau gögn og gagnabanka sem aðgengilegir eru, einnig er lögð nokkur áhersla á þýðingar á stuttum bókmenntatextum. Málfræðivillur eru kannaðar og unnið út frá þeim í verkefnum nemenda. Lögð er áhersla á flóknari atriði málfræðinnar.

Lesa meira
 

SPÆ 702 Sjálfstæð verkefni og vinnubrögð

Áfangalýsing

Nemendur velja efni til umfjöllunar og rannsóknar með aðstoð kennara. Megináhersla er á talmál, túlkun og mikla úrvinnslu á verkefnum. Sjálfstæð vinnubrögð eru í fyrirrúmi. Allt tiltækt rannsóknarefni er notað, s.s. bókakostur á bókasafni og upplýsingamiðlar (tölvur, útvarp, sjónvarp, blöð).

Nemendum gefst tækifæri til þess að velja sér sérgrein, t.d. spænskar bókmenntir, bókmenntir tiltekinna landa spænskumælandi Ameríku, viðskiptaspænsku eða spænsku fyrir ferðamenn svo að eitthvað sé nefnt.

Kennari er leiðbeinandi í verkefnavali og þróun verkefnis. Hann setur markmið í upphafi og ákveður námsmat og hvort áfanga er lokið með prófi eða ekki.

Markmiðið er að nemendur séu sjálfstæðir og ábyrgir fyrir vali sínu og geti tekist á við fjölbreytt verkefni. Í lok áfangans eiga þeir að geta rætt verkefni sín og dagleg málefni nokkuð rétt og án mikils hiks.

Gert er ráð fyrir því að nemendur geti tekist á við nám í spænsku á háskólastigi eftir áfangana 602, 612 og 702.

Lesa meira
 

SPÆ4124 Samræður á spænsku

Markmið áfangans er að nemendur þjálfist í samræðum á spænsku. Áfanginn byggist upp á samræðum á spænsku um spænska menningu, land og þjóð og hið raunverulega spænska líf.
 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur