Spænska
SPÆ 203 Orðaforði og málfræði
Undanfari: SPÆ 103
Áfangamarkmið
Nemandi
Framburður
æfi framburð og rifji upp reglur um framburð og áherslur í spænsku (upprifjun úr Spænsku 103), nánar tiltekið
mismunandi framburð b, d, ð (dæmi: Barcelona,Valencia, dinero, hablado)
mismunandi framburð g-hljóða (dæmi: gustar, guerra, Gibraltar, gente, guisantes)
framburð k-hljóða (dæmi: cacao, cocina, cuchillo, quiosco, queso)
framburð þ-hljóða (dæmi: zapato, zorro, zumo, cepillo, cine)
framburð á j, ñ, rr, ll og ch
hljóðleysi h
helstu reglur um áherslur í spænsku
muninn á spænskunni á Spáni og í Rómönsku Ameríku
Orðaforði
byggi upp orðaforða um athafnir daglegs lífs og tileinki sér þann orðaforða sem er í kennslubókinni og þjálfaður er markvisst í kennslustundum, nánar tiltekið, læri að
tjá sig um líkamlegt ástand, líkamshluta og andlega líðan
lýsa híbýlum sínum
tala um líf og menningu í einstökum spænskumælandi löndum
spyrja til vegar og nota samgöngutæki
tala um mat og matargerð
tala um atburði í nánustu framtíð og núliðinni tíð (dæmi: ir + a + nafnháttur sagna og haber + lýsingarháttur þátíðar)
Málfræði
læri grundvallaratriði í málfræði með íslenskt mál til hliðsjónar, nánar tiltekið,
kunni að byggja upp setningar
beygingar sagna í nútíð, núliðinni tíð og ákveðinni þátíð (pretérito indefinido)
að nota allar helstu óreglulegar sagnir í ofangreindum tíðum
að nota hljóðskiptar sagnir í ofangreindum tíðum
hjálparsögnina haber
að nota rétt ser og estar
lýsingarhátt nútíðar og þátíðar
nána framtíð (dæmi: ir a comprar)
kurteislegt form boðháttar (dæmi: coma usted todo, tome usted)
orðasambönd sem taka með sér nafnhátt (dæmi: tener que, acabar de, después de, antes de)
tímasetningar og staðaratviksorð
fornöfn (persónufornöfn í þolfalli og þágufalli, ábendingarfornöfn og óákveðin fornöfn)
allar algengar forsetningar
Málskilningur - hlustun
æfi hlustun af tal- og myndböndum, venjist því að hlusta og nái lágmarksskilningi, nánar tiltekið
geti skilið einföld samtöl af böndum og í samskiptaverkefnum
geti náð aðalatriðum í samtali við fólk sem talar skýrt og eðlilegt mál
geti fylgst með eðlilegu talmáli sem beint er að þeim og þar sem rætt er um dagleg málefni
æfi hlustun efnis af menningarlegum toga (söngvar, kvikmyndir)
læri að endursegja efni sem hann hlustar á
Málskilningur - lestur
byggi upp orðaforða með markvissri verkefnavinnu og lesi texta af ýmsum toga, nánar tiltekið
leiti tiltekinna upplýsinga í texta
greini aðalatriði úr texta
lesi efni úr dagblöðum, tímaritum og öðrum upplýsingamiðlum
lesi og þýði texta og ræði aðferðir við þýðingar
skilji allt það lesefni sem farið er í í tímum og geti unnið verkefni tengd því
Tjáning - samskipti
geti tekið þátt í einföldum samræðum við annað fólk, nánar tiltekið
beðið viðmælanda um að endurtaka og tala hægar
spurt og svarað einföldum spurningum um grunnþarfir sínar eða kunnugleg málefni
tekið þátt í einföldum samræðum um sig og daglegar athafnir sínar
Tjáning -talað mál
kappkosti að virkja nýjan orðaforða með því að nota hann í talmáli, nánar tiltekið
taki þátt í fjölbreytilegri samræðum á spænsku en í undanfara
gefi upplýsingar um kringumstæður sínar og umhverfi
ræði efnisatriði lesefnis
þjálfi sig í að segja frá einstökum atburðum í þátíð
Tjáning - ritað mál
tjái sig í rituðu máli og æfi málfræðiatriði, nánar tiltekið
skrifa texta með því að styðjast við kennslubók
tjá sig að takmörkuðu leyti um skoðanir sínar og langanir
æfi réttritunarreglur
riti rétt hljóðasamböndin: ca, co, cu, qui, que, za, zo, zu, ci, ce, ga, gui, gue, ge, gi
haldi dagbók og skrifi skilaboð um daglegt líf
fylli út eyðublöð
skrifi einfalt, persónulegt bréf
geri þýðingaræfingar
Menning
vinni meira með menningarlesefni í kennslubók, nánar tiltekið
vinni með hugmyndir sem upp koma í tímum og vekja sérstakan áhuga hans
vinni hópverkefni upp úr menningarefni í kennslubók
sé vakinn til umhugsunar um menningarlegan mun á íslensku samfélagi og spænskumælandi þjóðum
kynnist sem flestum þáttum menningarlífs spænskumælandi þjóða: stjórnmálum, bókmenntum, sögu, listum, mat, kvikmyndum, sérstökum orðaforða, félagslegum vandamálum, spillingu, fjölskyldugerð, kynþáttum o.s.frv.
afli sér þekkingar á því tungumáli sem hann vill
Námsmat
Framfarir nemenda eru stöðugt metnar og tekið er tillit til allra færniþátta. Í námsmati er lögð jöfn áhersla á alla færniþættina. Því mætti til dæmis haga þannig að 40% sé frammistaða yfir önnina og 60% sé próf í annarlok.