Skyndihjálp
SKY 101 Skyndihjálp
Undanfari: Enginn
Áfangamarkmið
Að loknu námi í áfanganum á nemandi að þekkja
þá hugmyndafræði sem skyndihjálp byggist á
aðferðir til að meta brunasár og kunna að bregðast við bruna
helstu höfuð-, háls- og hryggáverka og geta veitt skyndihjálp við slíkum áverkum
helstu brjóst-, kvið- og mjaðmaáverka og geta brugðist við þeim
helstu beina-, liðamóta- og vöðvaáverka og geta veitt skyndihjálp við slíkum áverkum
helstu forvarnir við kali, ofkælingu og ofhitnun og geta veitt viðeigandi skyndihjálp við slíkum áverkum
Að loknu námi í áfanganum á nemandi að geta
brugðist rétt við yfirvofandi lostástandi
brugðist rétt við dauðadái
veitt skyndihjálp við bráðum sjúkdómum
framkvæmt mat og skoðun á slösuðum einstaklingum
beitt hjartahnoði þegar það á við
beitt blástursmeðferð þegar hún á við
metið helstu tegundir sára
spelkað brot/tognanir