Sálfræði
SÁL 263 Þroska- og þróunarsálfræði II
Undanfari: SÁL 163
Áfangamarkmið
Nemandi
þekki helstu hugtök og kenningar um öldrunarferlið, helstu þroskafrávik, fatlanir og áföll
kunni skil á helstu kenningum og rannsóknum um breytingar á skynjun, hugsun og heilsu með hækkandi aldri
hafi þekkingu á þeim félagslegu, líkamlegu og andlegu breytingum sem verða þegar fólk eldist
þekki helstu skilgreiningar á hugtakinu fötlun og þekki helstu tegundir fötlunar
þekki þróun hugmyndafræði um málefni fatlaðra á 20. öldinni
hafi skilning á áhrifum fötlunar á sjálfsmynd og líf einstaklings og fjölskyldu hans
kunni skil á þeirri félagslegu aðstoð sem fötluðum stendur til boða
þekki leiðir til að vinna með einstaklinga og hópa sem lent hafa í áföllum, kreppu, kvíða eða sorg
sýni færni í að ræða um almennan þroskaferil mannsins og frávik út frá ýmsum sjónarhornum
geti gert grein fyrir helstu hugtökum matsaðferða og verkaskiptingu skóla og stofnana varðandi fatlaða
þekki helstu aðferðir og hjálpartæki sem notuð eru við kennslu og þjálfun fatlaðra
Efnisatriði
Hugtök, öldrunarferlið, þroskafrávik, kenningar og rannsóknir um öldrun og fötlun, breytingar á skynjun, breytingar á hugsun, breytingar á heilsu með hækkandi aldri, félagsleg- og sálfræðileg áhrif fötlunar, aðstoð við fatlaða, verkaskipting skóla og stofnana, blöndun, aðferðir og hjálpartæki kennslu og þjálfunar, áföll, áfallastreita, áfallahjálp, kreppa, kvíði og sorg.
Námsmat
próf
mat á verkefnum
þátttaka í hópverkefnum og mat á úrlausnum hópsins
símat á þátttöku nemenda
skýrsla um vettvangsferð
þátttaka í málþingi um efnið