Sálfræði
SÁL 403 Greind, félags- og persónuleikasálfræði
Undanfari: SÁL 303/313
Áfangamarkmið
Nemandi
öðlist innsýn í það hvernig heilinn vinnur með félagslegar upplýsingar og hvernig villur hann gerir helst í sinni hröðu úrvinnslu
þekki rannsóknir á fordómum og tilraunum til að breyta þeim
viti hvaða þættir skipta máli varðandi það við hverja manni líkar og hverja ekki
þekki áhrif hópa, hópþrýsting, höfnun hópsins og fleira
þekki rannsóknir á hlýðni manna við hversdagslegar og óvenjulegar aðstæður og viti hvaða þættir hafa áhrif á hana
sé líklegri til að hjálpa náunga í neyð eftir að hafa kynnt sér hvernig afskiptaleysi náungans er venjulega háttað
viti hvað viðhorf eru, hvort þau eru í samræmi við hegðun, hvernig hægt er að hafa áhrif á viðhorf og mæla þau
verði meðvitaðri um ýmsar leiðir til samskipta og tjáningar, yrtar og óyrtar, og geti túlkað afstöðu annarra ekki bara af orðum heldur einnig af líkamsstöðu og öðrum þáttum
öðlist innsýn í áhrif samskipta á atriði eins og vinnuanda og starfsánægju
þekki ólíkar skilgreiningar á persónuleika
prófi að setja saman persónuleikapróf
geri sér grein fyrir ólíkum kenningum um persónuleika og hugmyndum um mótun hans
þekki nokkrar aðferðir sem beitt hefur verið til að meta persónuleika og heilbrigði hans
viti hvað rannsóknir á niðurstöðum persónuleikaprófa segja, t.a.m. um kenningarnar og um stöðugleika persónuleika
geti rætt af þekkingu um kenningarnar og rökstutt skoðanir sínar á persónuleikakenningum og -prófum
fjalli um nokkrar ólíkar skoðanir á því hvað greind sé
þekki mismunandi aðferðir til að mæla greind, viti hvernig greindarpróf eru búin til og stöðluð, skilji merkingu greindarvísitölu (normalkúrfa, staðalfrávik)
geti rökrætt af þekkingu um álitamál varðandi greind, t.d. samanburð á greind kynstofna, kynja eða stétta og um þátt erfða og umhverfis
Efnisatriði
Skematísk vitneskjuvinnsla, staðalmyndir, fordómar, breyting á fordómum, minni, athuganir á viðhorfum, aðlöðun og ást, hópar, hópstarf, samskipti og tjáning, vinnusálfræði, persónuleiki, persónuleikapróf, greind, mismunandi skilgreiningar, greindarmunur.
Námsmat
Mat getur verið hefðbundið, lokapróf 50%, verkefni á önn 50%, eða meira vægi haft á verkefnum ef ástæða er til. Dæmi um stór verkefni: félagssálfræðileg rannsókn, fylgnikönnun eða tilraun, tilraun til að gera eigið persónuleikapróf og jafnvel leggja það fyrir, ritgerð um greind eða annað efni áfangans. Smærri verkefni eru tímaritgerðir (rökfærsluritgerðir), umræður og niðurstöður af þeim, greinargerðir um greinar eða annað sem nemendur kynna sér.
Ef nemandi gerir ritgerð eða skýrslu í þessum áfanga eru að sjálfsögðu gerðar strangar kröfur um vinnubrögð sem æfð hafa verið í undanförum.