Sálfræði
SÁL 313 Fötlun, áföll og öldrun
Undanfari: SÁL 203/213
Áfangamarkmið
Nemandi
viti hvað talið er til fötlunar í dag
átti sig á að ýmsar hindranir, sem mæta fötluðu fólki, tengjast fremur félagslegum þáttum og hefðum en skertu atgervi þeirra sem búa við fötlun
geri sér grein fyrir að fatlaðir eru ólíkir einstaklingar sem hafa vilja og getu til að nýta sér hæfileika sína, stjórna eigin lífi og eiga rétt á að deila kjörum með ófötluðum
viðurkenni að menn, óháð andlegu og líkamlegu atgervi, eiga sama rétt til að nýta sameiginleg gæði samfélagsins og oft þurfi að laga ytra umhverfi og almenna þjónustu að sérþörfum fatlaðra
öðlist innsýn í áhrif fötlunar á sjálfsmynd einstaklingsins
fái innsýn í áhrif fötlunar á aðra fjölskyldumeðlimi og hvernig búið er að íslenskum foreldrum sem eiga fötluð börn
öðlist þekkingu á hvernig aðstæður fatlaðra á Íslandi eru hvað varðar þjálfun, nám, heimili, vinnu og tómstundir
viti hvað felst í hugtökum eins og áfallastreita og áfallahjálp
þekki eðlileg viðbrögð fólks við óeðlilegum aðstæðum
öðlist innsýn í einkenni sorgarferlis
öðlist skilning á hugtökunum kvíði, kvíðaviðbrögð og kreppa, t.d. áfallakreppa og þroskakreppa
geri sér grein fyrir gildi samskipta og hvernig framkoma hans getur haft áhrif á líðan annarra
fái innsýn í áhrif stofnanadvalar og þess að vera háður öðrum
geri sér grein fyrir helstu áhrifum öldrunar á hugsun og líkama
þekki hvað átt er við með hugtökunum líffræðilegur, sálrænn og félagslegur aldur
velti fyrir sér viðhorfum til aldraðra í dag og réttmæti þeirra
öðlist reynslu af mismunandi leiðum til að afla gagna eins og á Netinu, með viðtölum, heimsóknum, rannsóknaraðferðum, úr bókum, tímaritum og með heimsóknum á stofnanir
kunni að skipuleggja tíma sinn við þekkingarleit
fái þjálfun í samvinnu við afmörkun, skipulagningu og úrvinnslu viðfangsefnis
fái þjálfun í að tjá eigin niðurstöður munnlega, skriflega eða í öðru formi sem nemandinn hefur valið sér
Efnisatriði
Fötlun, sjálfsmynd, aðstæður fatlaðra, stofnanir, áföll, áfallahjálp, kvíði, sorg, öldrun, líkamsbreytingar, félagslegar aðstæður, aðlögun.
Námsmat
Námsmat ætti að byggjast að mestu leyti á verkefnavinnu nemenda. Stórt verkefni um fötlun gæti gilt um 50% af lokaeinkunn, einkunnin tekur t.d. til ritgerðar, munnlegrar kynningar á efni hennar og vinnuferlisins. Hægt er að hafa möppumat samhliða verkefnamati, þá skilar nemendahópurinn vinnumöppu þar sem hægt er að skoða vinnuferlið við verkefnavinnuna. Ef nemendur semja ritgerð eru gerðar sömu kröfur til hennar og gerðar eru í SÁL 313.
Hluti af námsmati byggist á almennum spurningum úr sameiginlegu námsefni (s.s. fyrirlestrum kennara um fötlun, áföll og aldraða). Mætingu og ástundun þarf að taka inn í matið, annaðhvort beint til einkunnar eða krefjast ákveðinnar lágmarksmætingar, t.d. 80% mætingar til að nemandi nái áfanganum.
Tillaga að námsmati: verkefni um fötlun 50%, tímapróf/-verkefni 20-30%, verkefni um öldrun 10-20%, önnur viðfangsefni 10-20%, ástundun 0-10%.