Sálfræði
SÁL 303 Afbrigðasálfræði
Undanfari: SÁL 203/213
Áfangamarkmið
Nemandi
þekki og sé meðvitaður um einkenni streitu
þekki leiðir til að vinna gegn streitu, hafi til dæmis þjálfast í að nota slökunaraðferðir
þekki skaðleg áhrif streitu og hvað hefur áhrif á streituþol fólks
viti að til eru viðurkennd flokkunarkerfi fyrir geðræn vandamál og geti greint einföld dæmigerð tilfelli samkvæmt þeim
geti gert grein fyrir einkennum, algengi, mögulegum orsökum og áhættuþáttum helstu geðrænna kvilla: kvíðaraskana (fælni, áráttu/þráhyggju o.fl.), lyndisraskana (einhverflyndi – þunglyndi og tvíhverflyndi – geðhæð/geðlægð), geðrofaraskana o.fl.
þekki helstu meðferðarform, hugmyndafræði þeirra og aðferðir; þekki niðurstöður rannsókna á árangri þeirra og viti um erfiðleika við að bera þær saman
öðlist nokkra innsýn í það hvernig viðhorf til og meðferð geðsjúkdóma hefur breyst í gegnum tíðina
kynni sér aðbúnað geðfatlaðra og möguleika til mannsæmandi lífs
þjálfist í gerð rannsóknarritgerðar og dýpki í leiðinni þekkingu sína á einhverjum námsþætti
geti fjallað um muninn á geðheilbrigði og frávikum og þekki leiðir til að viðhalda eða bæta eigin geðheilsu og annarra, viti m.a. hvenær þörf er á að leita hjálpar og hvar er hægt að leita hennar
þekki lagalegar og siðfræðilegar reglur sem gilda um meðferð persónuupplýsinga
temji sér að sýna geðfötluðum virðingu og skilning
Efnisatriði
Streita: streitueinkenni, streitumælingar, streituþol, streituvarnir, slökun, áföll og áfallahjálp.
Geðheilbrigði: skilgreining, forvarnir, sjálfshjálp.
Flokkunarkerfi geðrænna vandamála (DSM 4): lyndisraskanir og geðklofaraskanir, kvíðaraskanir.
Meðferð geðrænna vandamála: sálkönnun, atferlismeðferð, hugræn meðferð, mannúðarsálfræði, lyf, lyfleysuáhrif.
Viðhorf til geðfatlaðra.
Námsmat
Eins og í öðrum sálfræðiáföngum er æskilegt að vægi skiptist jafnt á milli vinnu á námstíma og lokaprófs. Ritgerð gildi a.m.k. 20% til að leggja áherslu á mikilvægi hennar. Mat á annarri vinnu á önn getur verið margs konar: mat á hópvinnu, fyrirlestri, leikrænni tjáningu, þátttöku í umræðum, samviskusemi við heimavinnu, greinargerð um heimsókn á stofnun eða gestafyrirlestur, gerð vefsíðu og fleira. Dæmi um námsmat: lokapróf 50-55%, ritgerð 20%, 2-4 tímapróf 10-15%, verkefni 10-20%.