Sálfræði

SÁL 213 Lífeðlisleg sálfræði

Undanfari: SÁL 103

Áfangamarkmið
Nemandi
þekki gerð og starfsemi heila, tauga- og hormónakerfis í grófum dráttum
þekki niðurstöður rannsókna á klofnum heila og hvað þær segja okkur um sérhæfingu heilahvela og sjálfsvitund
þekki áhrif algengustu vímuefna á lífefnafræði heilans og skynjun
þekki og geti fjallað um skaðsemi ávana- og vímuefna
geti rakið ferli skynjunar frá því að skynfæri sjónar eða heyrnar eru áreitt og þar til boð berast heila, einnig í grófum dráttum skynferli lyktar, bragðs, snertingar og jafnvægis
geti fært rök fyrir því í hvaða mæli skynjun sé meðfædd eða lærð
þekki helstu niðurstöður rannsókna á skynjun, þekki t.d. til kenninga gestaltsinna um skynheildir og hugfræðinga um skemu
geti fjallað um vitund og fyrirbæri á mörkum vitundar, sem og breytt vitundarstig
þekki staðreyndir um svefnstig og svefnvandamál, drauma og leiðsluástand eins og dáleiðslu
þekki leiðir til að notfæra sér tilhneigingu okkar til dagdrauma á uppbyggilegan hátt
kynnist kenningum og rannsóknum varðandi dulskynjun og viti af hverju vísindamenn hafa efasemdir um tilvist dulskynjunar

Efnisatriði
Taugafruma, skipting taugakerfis, líffærafræði heila, staðsetning ýmissa skyn- og stjórnsvæða, sérhæfing heilahvela, hormón, skynjun, hugræn úrvinnsla skynáreita, skynvillur, yfirskilvitleg skynjun, eðli meðvitundar, breytt vitundarstig, vímuefni.

Námsmat
Eins og í öðrum sálfræðiáföngum er æskilegt að gildi lokaprófs og annareinkunnar sé svipað. Áframhaldandi þjálfun í vinnubrögðum greinarinnar er metin í tilraunum og skýrslugerð. Meta má hvernig nemandi hefur dýpkað þekkingu sína og um leið er æfð leit að og notkun heimilda með ritgerð og/eða vefsíðugerð um efni tengt áfanganum. Tímapróf og lokapróf mæla þekkingu en tímaritgerðir æfa nemendur í að taka sjálfstæða afstöðu til álitamála og færa gild rök fyrir skoðun sinni.
Tillaga að námsmati: lokapróf 50-60%, 2-3 skýrslur 10-15%, ritgerð eða vefsíðugerð 15%, 2-4 tímapróf/ritgerðir 10-15%, önnur verkefni 10%.

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur