Sálfræði

SÁL 103 Almenn sálfræði

Áfangamarkmið
Nemandi
þekki helstu stefnur og rannsóknaraðferðir sálfræðinnar í sögulegu samhengi
fái innsýn í fjölbreytileika sálfræðinnar, þekki helstu starfssvið sálfræðinga og viti hvernig sálfræði nýtist í daglegu lífi og í meðferð
þjálfist í vísindalegri hugsun og vinnubrögðum með því að gera litlar rannsóknir og skýrslur um þær samkvæmt viðurkenndum reglum
verði fær um að koma niðurstöðum sínum á framfæri munnlega fyrir framan hóp jafningja
fái innsýn í þætti sem hafa áhrif á nám, námserfiðleika, minni og skynjun og þar af leiðandi einnig á hegðun fólks
viti hvað viðbragðsskilyrðing er og þekki tengsl við daglegt líf, svo sem óttaviðbrögð, auglýsingar, lyf og ofnæmi
viti hvað virk skilyrðing er og þekki tengsl hennar m.a. við uppeldi, nám og meðferð hegðunarvandamála og geðrænna vandamála
viti hvað hugrænt nám er og geti rökrætt um athygli, skynjun, rökhugsun, mál o.fl.
öðlist innsýn í grundvallaratriði mannlegra samskipta
þekki til leiðbeininga sálfræðinga um hvernig hægt er að takast á við vandamál daglegs lífs

Efnisatriði
Kynning á sálfræðinni: viðfangsefni fræðilegrar og hagnýtrar sálfræði, sálfræðistefnur, frumkvöðlar, rannsóknaraðferðir, rannsóknarvinna.
Námssálarfræði: virkar skilyrðingar, viðbragðsskilyrðingar, hugrænt nám, námserfiðleikar, námstækni, minni, minnistækni, samskipti, líkamstjáning.
Vandamál daglegs lífs: togstreita, samskipti, ákveðni.

Námsmat
Æskilegt er að vægi lokaprófs og mats á vinnu á önninni sé nokkuð jafnt. Á lokaprófi er einkum metið hvort þekkingarmarkmiðum hefur verið náð. Skýrslur eiga að sýna færni í sjálfstæðum, vísindalegum vinnubrögðum og heimildanotkun, einnig færni í ritvinnslu og meðferð íslensku og tölfræði sem er þverfagleg krafa á stúdentsbrautum. Kaflapróf og önnur verkefni geta einnig verið þáttur í námsmati. Tillaga að vægi námsþátta: lokapróf 50%, skýrslur 20-30%, kaflapróf 10-15%, önnur verkefni 5-10%.

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur