Rekstrarhagfræði
REK 203 Rekstrarhagfræði, kostnaðargreining
Undanfarar: REK 103 og STÆ 203
Áfangamarkmið
Nemandi
noti líkön til að skýra samband tveggja framleiðsluþátta, svo sem véla og manna, samband verðs og magns, samband framleiðslumagns, kostnaðar og tekna við framleiðslu á vörum
þekki helstu strauma hagkerfisins og geri sér grein fyrir stöðu fyrirtækja í nútímamarkaðshagkerfi
geri greinarmun á hámarksmarkmiðum og viðunandi markmiðum fyrirtækja með tilliti til hagsmunaaðila
skilji mikilvægi framboðs og eftirspurnar til að viðhalda jafnvægi í framleiðslu og neyslu
geri sér grein fyrir áhrifum hagsveiflna á rekstur fyrirtækja
þekki framleiðsluþættina og greini framleiðslufallið bæði stærðfræðilega og með líkani
noti líkön til að útskýra þenslubraut fyrirtækis
reikni dæmi og útskýri jafnmagns- og jafngjaldalínur
greini fastan og breytilegan kostnað, tekjur, framlegð og rekstrarjafnvægi
noti líkön til þess að skýra ákvarðanir neytenda um hámörkun nota
þekki til kenninga um hámörkun velferðar út frá sjónarhorni fyrirtækja og þjóðfélagsins í heild
greini á milli einokunar, einkasölusamkeppni og fullkominnar samkeppni á markaðinum
noti línurit til þess að tjá sig um stöðu á markaði
noti upplýsingatækni við útreikninga og aðra vinnslu
Efnisatriði
Líkön, efnahagshringrás, staða fyrirtækja í nútímahagkerfi, kostnaðar- og tekjuhugtök, ábati neytenda, framleiðenda og samfélagsins; framboð, framleiðslufall, tæknileg bestun, jafnmagns- og jafngjaldalínur, þenslubraut, lögmálið um minnkandi afrakstur, meðalframleiðsla, jaðarframleiðsla, vaxtarþörf, vaxtarleiðir, eftirspurn, tekjufall, notagildi, verðteygni, tekju- og staðkvæmdaráhrif, samkeppnisaðstæður á markaði, fullkomin samkeppni, einkasölusamkeppni, verðleiðsögn, fákeppni, tvíkeppni, einokun, hámörkun hagnaðar, hagkvæmasta val fyrirtækis (magn, verð) og rekstrarjafnvægi.
Námsmat
Við námsmat getur hentað að beita skriflegu prófi til að kanna skilning nemenda á námsefninu í samræmi við markmið áfangans, enn fremur einstaklingsbundnum verkefnum og hópverkefnum þar sem reynir á getu nemenda til að nota upplýsingatækni við lausn rekstrarhagfræðilegra úrlausnarefna. Æfingapróf mætti halda bæði í tölvunotkun við lausn rekstrarhagfræðilegra verkefna og skrifleg próf sem kanna skilning nemenda á námsefninu.