Rekstrarhagfræði
REK 103 Almenn rekstrarhagfræði
Áfangamarkmið
Nemandi
þekki grundvallarhugtök hagfræðinnar sem fjalla um framleiðsluþætti, skort, val og fórn
skilgreini efnahagsheildir og helstu strauma efnahagslífsins
geri greinarmun á frumvinnslu, úrvinnslu og þjónustu og flokki helstu atvinnugreinar
skilgreini starfsgrundvöll fyrirtækis
fjalli um helstu þætti í umhverfi fyrirtækja og greini á milli þátta sem þau hafa vald yfir og áhrif á
þekki þá þætti sem ráða staðarvali fyrirtækja
kunni vinnuaðferðir við stefnumótun og markmiðssetningu
geri greinarmun á hámarksmarkmiðum og viðunandi markmiðum
skýri áhrif hagsmunaaðila á markmiðssetningu fyrirtækja og fjalli um samvinnu og togstreitu á milli þeirra
skilgreini rekstrarform fyrirtækja
þekki helstu skipurit, verkaskiptingaraðferðir og dreifingu valds og ábyrgðar
fjalli um helstu stjórnunarstíla
útskýri virðisauka (verðmætasköpun) fyrirtækja og ráðstöfun hans
fjalli um framleiðslukerfi, skipulag tækja og mannafla, teikningu framleiðsluferla og samræmingu á afkastagetu
þekki helstu kostnaðarhugtök og aðferðir við útreikning framlegðar og rekstrarjafnvægis
þekki grunnskilgreiningar markaðsfræðinnar
fjalli um bókhald og mikilvægi þess í rekstri fyrirtækja
þekki notkun fjárhags-, viðskiptamanna-, lager- og kostnaðarbókhalds
Efnisatriði
Grunnhugtök hagfræðinnar, efnahagsheildir, flokkun fyrirtækja, starfsgrundvöllur og rekstrarform fyrirtækja, stefnumótun, stjórnun, framleiðsla, bókhald, markaðsstarf og kostnaðargreining.
Námsmat
Námsmat felst annars vegar í skriflegu prófi sem byggist á markmiðum áfangans og hins vegar símati sem getur falist í hóp- eða einstaklingsverkefnum, m.a. greiningu á fyrirtæki samkvæmt nánari fyrirmælum kennara.