REK 103 Almenn rekstrarhagfræði
Áfangalýsing
Í þessum byrjunaráfanga er fjallað um rekstur fyrirtækja, umhverfi þeirra og þann samtakamátt sem liggur að baki reksturi fyrirtækis og árangri þess í samfélaginu. Fjallað er um grunnatriði hagfræðinnar sem varða nýtingu framleiðsluþáttanna og skilgreiningar mismunandi efnahagsheilda. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist yfirsýn yfir fyrirtæki sem efnahagsheild og hvernig það þrífst í samkeppni við önnur fyrirtæki í samfélagsheildinni. Til þess að nemendur öðlist skilning á eðli og uppbyggingu fyrirtækja er farið yfir helstu þætti er varða innra skipulag og ytri aðstæður fyrirtækja. Þannig læra nemendur að flokka atvinnugreinar, kynnast umhverfi og starfsgrundvelli fyrirtækja, stefnumótun og markmiðssetningu, kostnaðargreiningu og grunnþáttum markaðsfræði og bókhalds.
Meginmarkmið áfangans er að nemendur öðlist skilning á viðhorfum stjórnenda til reksturs fyrirtækja og geti fjallað um rekstur þeirra af nokkrum skilningi.
Efnið er kennt með fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu. Lögð er áhersla á að nemendur nýti þá þekkingu sem þeir hafa af eigin reynslu í atvinnulífinu, taki dæmi þaðan og beri námsefnið saman við eigin reynslu. Verkefnavinna skiptist í einstaklingsverkefni og hópverkefni sem krefjast agaðra vinnubragða og samvinnu. Fyrir utan hefðbundin kennslugögn er ætlast til að nemendur geti nýtt sér Netið til upplýsingaöflunar og skoðunar á þeim vaxandi markaðsmöguleikum sem þar er að finna.
Lesa meiraREK 113 Rekstrarhagfræði I
Áfangalýsing
Í áfanganum er fjallað um grunnatriði fjármála og bókhalds, dagbókarfærslur, opnun og lokun höfuðbókar og tengsl þessara bóka. Kennt er að merkja fylgiskjöl og færa dagbók eftir þeim. Nemendur kynnast tölvubókhaldi og læra uppsetningu bókhaldslykla, færslu bókunarbeiðna fyrir fjárhagsbókhald, uppsetningu reikninga og almennrar skráningar og færslur á tölvur, uppgjör og útprentun. Fjallað er um gerð rekstrar- og efnahagsreiknings, útreikninga á núllpunkti og kennitölur sem túlka ársreikningana. Að lokum er fjallað um kostnaðarhugtök, tekjur, beinan og óbeinan kostnað, verð- og framlegðarútreikninga.
REK 123 Rekstrarhagfræði II
Áfangalýsing
Í áfanganum er fjallað um áætlanagerð í frístundastarfsemi svo sem starfs-, rekstrar-, fjárhags-, greiðslu-, markaðs- og kynningaráætlanir. Nemendur læra að gera einfaldar áætlanir með hjálp töflureikniforrits. Áhersla er lögð á verkefnastjórnun, fjárþörf og fjármögnun. Farið er yfir helstu fjáröflunar- og kostunarleiðir í félags- og tómstundastarfi og nemendur læra að markaðssetja slíka starfsemi á fjölbreytilegan hátt. Kynnt eru meginatriði áætlanagerðar ríkis og sveitarfélaga og grunnatriði markaðsfræða og markaðsrannsókna. Lögð er áhersla á gerð raunhæfra verkefna þar sem nemendur móta hugmynd að verkefni, gera áætlun um framkvæmd þess, leggja fram hugmyndir að samstarfsaðilum og fjármögnun.
REK 203 Rekstrarhagfræði, kostnaðargreining
Áfangalýsing
Í áfanganum er farið yfir helstu skilgreiningar á kostnaði og tekjum fyrirtækja. Leitast er við að auka skilning nemenda á viðfangsefnum í rekstri fyrirtækja og veita þjálfun við lausn verkefna. Fjallað er um hagkvæmasta val framleiðsluþátta, framleiðslu- og kostnaðarföll, framboð, eftirspurn, nytjaföll, verðteygni og verðmyndun við mismunandi markaðsform. Stór hluti áfangans felst í stærðfræðilegri greiningu á rekstrarhagfræðilegum úrlausnarefnum. Efnið er kennt með fyrirlestrum, dæmum, einstaklings- eða hópverkefnum. Áhersla er lögð á stærðfræðilega nálgun og notkun línurita til að leysa rekstrarhagfræðileg viðfangsefni, svo sem kostnað, tekjumyndun og jafnvægi í rekstri fyrirtækja. Nemendur eru m.a. þjálfaðir í að beita deildun við hámörkun hagnaðar og línulegri bestun við val á framleiðslukostum. Við úrlausn verkefna er gert ráð fyrir að notuð sé nýjasta upplýsingatækni og verulegur hluti námsins fari fram í tölvustofum.
Lesa meira