Myndlist

MYN 103 Myndlist (valgrein)

Áfangamarkmið
Nemandi
skoði og skilgreini myndmál nútímasamfélags, svo sem auglýsingar, fréttamyndir, tölvur, ljósmyndir og tölvumyndmál
öðlist skilning á grundvallarhugtökum litafræði
fái innsýn í byggingarlist og hönnun 
geti greint byggingarstíl frá ýmsum tímabilum 
þekki helstu þætti er varða forsendur hönnunar, s.s. notagildi, fagurfræði, kostnað, efnisfræði, framleiðsluferli o.s.frv. 
geti gert greinarmun á listhönnun og iðnhönnun 
hanni nytjahlut 
fái innsýn í evrópska og íslenska myndlist frá 1850 
þekki helstu stíltegundir og stefnur tímabilsins 
öðlist skilning á nokkrum grundvallarhugtökum myndlistar  
velti fyrir sér markmiðum og tilgangi kvikmyndalistar og læri grunnatriði kvikmyndagagnrýni 
skoði og myndgreini eina kvikmynd (myndmál, sagan, tákn, leikur, klipping, lýsing o.s.frv.)  
fái innsýn í sögu, tilurð og tilgang ljósmyndarinnar 

Efnisatriði/kjarnahugtök 
Auglýsingar, fréttamyndir, tölvumyndmál, hönnun, byggingarlist, kvikmyndalist, litafræði, heitir litir, kaldir litir, andstæðir litir, dempaðir litir, hreinir litir, frumlitir ljóss, frumlitir litarefna, litatónar, litur, lína, grunnform, fjarvídd, tvívídd, þrívídd, lágmynd, portrett, höggmynd, myndbygging, forgrunnur, bakgrunnur, miðgrunnur, prófíll, módernismi, listmálun, olíulitur, vatnslitur, akríllitur, freska, grafík, æting, tré- og dúkrista, silkiþrykk, gullinsnið, mósaík, ismar (stíll/listastefnur), kitsch, efnislæg list, huglæg list, tákn, textíll, endurreisn, impressjónismi, expressjónismi, kúbismi, fútúrismi, abstrakt, geómetrískt abstrakt, abstrakt expressjónismi, dadaismi, naumhyggja (minimalismi), súrrealismi, popplist, oplist, súperrealismi, konseptlist, landlist, nútímalist, funksjónalismi, listhönnun, iðnhönnun, oddbogi, hringbogi, camera obscura, ljósnæmni, fókus, víðmynd, heilmynd, hálfmynd, nærmynd, ýkt nærmynd, tilt, súm, klipping, sjónarhorn.

Námsmat 
Dæmi um námsmat gæti verið eftirfarandi: Skrifleg verkefni um safnferðir og heimsóknir til listamanna (15%). Nemendur ljósmynda og skrifa um byggingar og höggmyndir (20%). Hönnunarverkefni (5%). Bíóferð: nemendur skoða bíómynd og skrifa ritgerð (20%). Lokapróf (40%). Matið skal miðast við lokamarkmið áfangans.

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur