Lífsleikni

LKN 103 Lífsleikni

Áfangamarkmið  

  • Nám í framhaldsskóla
    Nemandi
    geti nýtt sér námsframboð og námsleiðir skólans á sem árangursríkastan hátt 
    sé fær um að skoða mismunandi námsleiðir, gera skipurit af þeim og meta hvert þær leiða 
    þekki forkröfur ýmissa viðtökuskóla/deilda og atvinnulífs um námsundirbúning og námsárangur 
    læri árangursríkar aðferðir við nám í framhaldsskóla 
    geti nýtt sér ýmis stöðluð og viðurkennd sjálfsmatspróf til að meta áhuga- og hæfnisvið sín á gagnrýninn og raunhæfan hátt 
    geti nýtt sér ýmsa félagsstarfsemi og aðra nemendaþjónustu sem er í boði innan skólans 
    fái tækifæri til að kynnast og að taka virkan þátt í félagsstarfi skólans í samræmi við áhugasvið sitt 
    viti hvaða sérfræðiþjónustu skólinn hefur upp á að bjóða og hvar hennar er að leita, t.d. umsjónarkennara, námsráðgjafa, skólasafnið 
  • Þemaþættir
    Nemandi
    velti fyrir sér stöðu sinni sem einstaklings innan samfélags og menningar; það felur m.a. í sér að nemandinn 
    átti sig á samhengi ímyndar, lífsstíls og lífsskoðunar og fyrirætlana sem lúta að eigin framtíð
    taki ábyrgð á eigin lífi sem m.a. felur í sér að taka ábyrga afstöðu til fíkniefna og lyfja sem notuð eru til lækninga
    öðlist þekkingu á samfélagi sínu til að móta og bæta umhverfi sitt á ábyrgan hátt með lýðræðis-legum aðferðum, aðgerðum og umræðu
    fái tækifæri til að taka þátt í og njóta list- og menningarviðburða
    fái tækifæri til að fjalla um ýmis dægurmál sem upp kunna að koma hverju sinni, í tengslum við nám sitt, næsta umhverfi eða á opinberum vettvangi
    verði ábyrgur neytandi í flóknu og margbreytilegu samfélagi
    velti fyrir sér stöðu sinni sem einstaklings í samhengi við manngert og náttúrulegt umhverfi; það felur m.a. í sér að nemandinn þroski með sér alþjóðavitund og ábyrgðarkennd gagnvart komandi kynslóðum um nýtingu á sameiginlegum auðlindum átti sig á þýðingu hugtaksins sjálfbær þróun í umhverfismálum
    skilji hvaða gagnvirku náttúru- og samfélagslegu öfl það eru sem stýra umgengni okkar við náttúruna og auðlindir jarðar eflist í trúnni á að framlag hans sé einhvers virði, að hann sjálfur fái miklu áorkað í baráttunni fyrir bættu umhverfi
  • Tjáning 
    Nemandi
    þjálfist í að kynna hugðarefni sín frammi fyrir öðrum á formlegan og óformlegan hátt 
    fái þjálfun í að tjá og fylgja eftir skoðunum sínum, tilfinningum og hugðarefnum á opinberum vettvangi og í vinahóp 
    geti átt auðgandi og gefandi samskipti við einstaklinga óháð kyni, kynferði, þjóðerni, trú og líkamlegu og andlegu atgervi 
    geti beitt margvíslegum aðferðum við að koma hugmyndum sínum og skoðunum á framfæri við aðra 
 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur