LKN 102 Lífsleikni
Áfangalýsing
Markmið áfangans eru tvíþætt. Annars vegar að aðstoða nemandann í að glöggva sig betur á námsleiðum skólans, hann átti sig á til hvers þær leiða og geri sér betur grein fyrir kröfum hugsanlegra viðtökuskóla eða atvinnulífs. Í áfanganum mun nemandinn einnig fá kynningu á skólastarfinu og félagslífi nemenda og kynnast umsjónarkennara sínum og hlutverki hans. Hins vegar verður lögð áhersla á að styrkja samkennd nemenda og að efla tjáningarhæfni þeirra og sjálfstraust þannig að þeir geti sett fram eigin skoðanir og kenningar um margvísleg málefni og rökrætt þær sín á milli. Nemendur geta þannig valið mismunandi verkefni sem tengjast þema áfangans og kynnt verkefnin fyrir samnemendum sínum með margvíslegum aðferðum við miðlun upplýsinga. Þannig er ekki gert ráð fyrir að allir nemendur séu að fást við sömu viðfangsefni.
Að áfanganum geta komið ýmsir aðilar eins og umsjónarkennari nemandans, námsráðgjafi skólans, bókasafnsfræðingur skólans, nemendur skólans í tengslum við jafningjafræðsluna og félagslíf skólans, aðilar utan skólans o.s.frv. Æskilegt er þó að einn kennari hafi yfirumsjón með áfanganum og sjái um skipulag hans.
Lesa meiraLKN 103 Lífsleikni

Lesa meiraLKN 293 Lífsleikni og samfélag
Áfangalýsing
Markmið áfangans er að styrkja sjálfsmynd nemenda. Reynt verður að ná því markmiði með fjölbreyttum hætti. Nemendur munu m.a. taka þátt í félagslífi skólans á markvissan hátt með því að skipuleggja a.m.k. alfarið eitt skemmtikvöld fyrir nemendur skólans. Verkefnin verða af ýmsum toga en miða öll að því að styrkja stöðu nemenda sem einstaklinga í fjölbreyttu samfélagi. Stefnt verður að því að kynnast nýrri íþrótt, fara í stutt ferðalag og reyna á sig bæði líkamlega og andlega þessa önnina. Áfanginn er í mótun og því mun hann aðeins verða grófskipulagður í upphafi og reynt verður að mæta þörfum nemenda eins og hægt er.
Lesa meira