Líffræði
LÍF 303 Verkefnalíffræði
Undanfari: LÍF 203
Áfangamarkmið
Nemandi
þjálfist í að takast á við margvísleg verkefni sem krefjast nákvæmni og vandvirkni en einnig útsjónarsemi og nýsköpunar
þjálfist í að greina mismunandi umfjöllun um líffræðileg efni, svo sem í kennslubókum, fjölmiðlum, fræðiritum og á Netinu
geti gert raunhæfar áætlanir um rannsóknaraðferðir
þekki hvaða rannsóknartæki og hugbúnaður er á boðstólum í tengslum við líffræðinám
öðlist öryggi við beitingu ýmiss konar sérhæfðs búnaðar
öðlist reynslu af nýtingu upplýsinga- og samskiptatækni í tengslum við líffræðinám, t.d. við söfnun upplýsinga og uppsetningu vefsíðna
sé fær um að afla, flokka, vinna úr og miðla upplýsingum í tengslum við líffræðinám sitt á greinargóðan, gagnrýninn og skapandi hátt
þjálfist í að tjá sig um aðferðir sínar og lausnir í töluðu máli og rituðu
þjálfist í að vinna sjálfstætt og í samstarfi við aðra að fjölbreytilegum verkefnum
sýni að hann geti tengt saman þekkingu úr ólíkum fögum á mismunandi vegu
þjálfist í að móta sér sína eigin afstöðu studda rökum og niðurstöðum athugana sinna eigin og annarra
geri sér grein fyrir mikilvægi rannsókna á sviði náttúruvísinda, sér í lagi í tengslum við líffræði