Líffræði

LÍF 103 Lífeðlisfræði

Undanfarar: NÁT 103 og EFN 103

Áfangamarkmið
Nemandi
þekki helstu efnaflokka sem lífverur eru byggðar úr
geti lýst myndun efna í ljóstillífun
geti lýst hlutverki líffærakerfa í plöntum og dýrum
geti borið saman hliðstæð líffærakerfi í ólíkum lífverum, plöntum og dýrum
geti lýst gerð og starfsemi meltingarfæra en í því felst að
vita hvar og hvernig fæða meltist í meltingarveginum
vita hvar í meltingarveginum efni fara inn í æðar
geta lýst með hjálp dæma mikilvægi þess að neyta fjölbreyttrar fæðu
þekki starfsemi lifrar
þekki gerð og hlutverk öndunarfæra ólíkra lífveruhópa og geti í því sambandi lýst ferðum loftskiptaefna um líkama
þekki til myndunar og varðveislu nýtanlegra orkuefna í líkamanum og geti í því sambandi borið saman loftháða öndun og gerjun
þekki gerð og hlutverk flutningskerfa en í því felst að
þekkja efnaflutning í plöntum
geta lýst blóðrásarkerfi í máli og myndum
geta útskýrt blóðþrýsting og lýst byggingu og starfi hjarta
þekkja mismunandi gerðir æða
þekkja samsetningu og efnaflutning blóðs
þekkja storknunarferli blóðs
þekkja byggingu og starfsemi sogæðakerfis
þekki byggingu og starfsemi ónæmiskerfis
geti lýst húð og fjölþættri starfsemi hennar
geti lýst grundvallarþáttum samvægis, nefnt dæmi um þá og þekki í því sambandi
hvernig lífverur losa úrgang
byggingu og starfsemi nýrna
temprun líkamshita
þekki mun á uppbyggingu og starfsemi tauga- og innkirtlakerfis
þekki helstu störf ólíkra hluta miðtaugakerfisins en í því felst að
geta lýst byggingu taugafrumna, taugaboðum og flutningi þeirra á milli taugafrumna
geta lýst viðbragðsboga
geta nefnt dæmi um áhrif vímuefna á taugakerfið
þekki innkirtlakerfið og geti borið það saman við taugakerfið
geti rakið orsakir sjúkdóma til breytinga á líkamsstarfseminni
geti borið saman ólík stoðkerfi
geti borið saman mismunandi hreyfingu út frá frumustarfsemi
geti lýst myndun, þroskun og afdrifum kynfrumna
geti rakið fósturþroskun frá okfrumu til holfósturs

Efnisatriði
Melting, meltingarfæri, meltingarensím, efnaskipti, frumbjarga líf, tillífun, öndunarfæri, loftskipti, loftháð öndun, gerjun, blóð, blóðrás, sogæðakerfi, eitill, ónæmiskerfi, samvægi, þveiti, nýra, skynfruma, skynfæri, taugaboð, hormón, úttaugakerfi, miðtaugakerfi, stoðgrind, húð, hreyfing, kynfruma, kynfæri, fósturþroskun.

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur