Líffræði

LÍF 103 Lífeðlisfræði

Áfangalýsing

Í áfanganum er farið í líkamsstarfsemi dýra og plantna. Fjallað er um fæðunám, meltingu, öndun, efnaflutning, úrgangslosun, ónæmissvörun, boðaflutning, hreyfingu, æxlun, fósturþroskun, stjórn efnaskipta og samvægi. Hvert einstakt líffærakerfi er tekið fyrir og hliðstæð kerfi borin saman. Fjallað er um heilbrigða starfsemi en einnig algengustu frávik.

Nemendur skulu kynnast viðfangsefninu á sem fjölbreyttastan hátt, s.s. með notkun upplýsinga- og samskiptatækni og verklegum æfingum.

Lesa meira
 

LÍF 113 Vistfræði

Áfangalýsing

Áfanginn á að veita nemendum greinargóða yfirsýn yfir vistfræðina sem fræðigrein, aðferðafræði hennar og viðfangsefni. Lögð er áhersla á sérstöðu Íslands, helstu gerðir vistkerfa sem hér finnast í sjó jafnt sem á landi og vistfræðilegar rannsóknir hér á landi. Gert er ráð fyrir fjölbreyttri verkefnavinnu nemenda í áfanganum sem m.a. krefst vettvangsferða, heimsókna, upplýsingaöflunar og framsetningar ýmissa smærri og stærri verkefna.

Í áfanganum er fjallað um uppbyggingu, orkuflæði og efnahringrásir vistkerfa og teknar fyrir kenningar sem lúta að stöðugleika eða kviku jafnvægi vistkerfa. Fjallað er um líffræðilegan fjölbreytileika og breytingar á tegundasamsetningu líffélaga, bæði af náttúrulegum orsökum og af völdum manna.

Stofnhugtakið er tekið fyrir og skoðaðar helstu mælingaaðferðir og rannsóknir á stofnum. Fjallað er um sjálfbæra nýtingu lífrænna auðlinda og helstu nytjastofna hér við land. Rætt er um aðlögun og hæfni lífvera og áhrif vistfræðilegra þátta á þróun þeirra og atferli.

Lesa meira
 

LÍF 203 Erfðafræði

Áfangalýsing

Í áfanganum er fjallað um sögu erfðafræðinnar og stöðu hennar innan náttúruvísinda. Fjallað er um lykilatriði erfðafræðinnar, frumuskiptingu, litninga og gen, myndun kynfrumna og frjóvgun. Einnig um erfðamynstur lífvera og hvað ræður kynferði þeirra. Litningar eru teknir nánar til umfjöllunar frá NÁT 103 og skoðað hvernig þeir stjórna myndun próteina í lífverum og atburðarás prótínmyndunar rakin. Breytingum á erfðaefni, stökkbreytingum og litningabreytingum er lýst ásamt sérkennum í erfðum örvera og fjallað um helstu aðferðir sem beitt er í erfðarannsóknum og erfðatækni. Fjallað er um tíðni og jafnvægi gena í ólíkum stofnum lífvera. Gert er ráð fyrir fjölbreyttri verkefnavinnu nemenda í áfanganum.

Lesa meira
 

LÍF 303 Verkefnalíffræði

Áfangalýsing

Í þessum áfanga samþættir nemandinn þá þekkingu og færni, sem hann hefur aflað sér í fyrri líffræðiáföngum og öðrum námsgreinum, við vinnu að fjölþættum úrlausnarefnum og verkefnum. Meginmarkmið áfangans er þannig að brjóta niður veggi milli fyrri áfanga og faga, rifja upp efni þeirra og setja það í víðara samhengi en áður hefur verið mögulegt. Mælt er með að lágmarkseinkunn inn í áfangann verði 6.

Hver nemandi velur á milli þess að vinna a.m.k. einnar einingar vefsíðuefni eða heimildaritgerð sem krefst a.m.k. að hluta til þýðinga úr erlendum fræðiritum um þrengri svið líffræðinnar. Nemendur vinna sjálfstætt og í hópum og þjálfast í að koma hugmyndum sínum og niðurstöðum frá sér á greinargóðan hátt.

Skólar geta boðið upp á margbreytileg verkefni sem m.a. helgast af sérstöðu þeirra og áhugasviði nemenda. Nemendur nota ýmiss konar búnað og nýta upplýsinga- og samskiptatæknina við verkefni sín. Gert er ráð fyrir samstarfi við stofnanir og ýmsa aðila sem starfa innan fræðasviðsins.

Tilvalið væri að hver skóli kæmi sér upp langtímaverkefni eða -verkefnum þar sem hver nemendaárgangur vinnur einn hlekk verkefnisins.

Lesa meira
 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur