Leiklist

LEK 103 Leiklist (valgrein)

Áfangamarkmið
Nemandi
geti nýtt sér upphitunar-, radd- og slökunaræfingar til að undirbúa sig undir að koma fram opinberlega
geti lesið upp úr handriti leikrits undirbúningslaust og tekið þátt í áheyrnarprufum
geti beitt röddinni á mismunandi hátt eftir aðstæðum og ólíku rými 
geti leikið á óþvingaðan og sannfærandi hátt fyrir framan aðra 
kunni að leika með grímur 
geti farið með ljóð og flutt ræður á óþvingaðan, skapandi hátt 
sé fær um að nýta sér bardagalist (detta, rekast á veggi og slást) í leikrænni tjáningu 
geti á skapandi hátt tekið þátt í fjölbreytilegum spunaverkefnum 
kunni undirstöðuatriði látbragðsleiks 
geti fjallað um og metið eigin frammistöðu og annarra á upplýstan og greinargóðan hátt og gert grein fyrir forsendum 
sé fær um að ræða þær hugmyndir sem liggja að baki eigin persónusköpun 
sé fær um að ræða opinskátt um þær hugmyndir sem hann reynir að túlka í útfærslu sinni á leikatriðum og ramma þeirra (leikmynd, lýsing, tónlist, förðun og búningar) 
sé fær um að taka gagnrýna afstöðu til leikverka og túlka hana í ræðu og riti 
geri sér grein fyrir því hvernig leiklistin tengist öðrum listgreinum 
fái innsýn í vestræna leiklistarsögu 

Efnisatriði/kjarnahugtök  
Upphitunaræfingar, traustsæfingar, slökun, raddbeiting, persónusköpun, spuni, förðun, leikritalestur, bardagalist, látbragðsleikur, trúðalist, leikur með grímur, búninga- og sviðsmyndahönnun.

Námsmat 
Æskilegt er að sköpun, túlkun og tjáning vegi 2/3 af lokamati og skynjun, greining og mat 1/3. Undir ferlið sköpun/túlkun/tjáningu falla skilgreind verkefni nemenda, svo sem látbragðsleikur, ljóðalestur, spuni og leikur þar sem nemendur túlka og fullvinna til sýningar atriði leikverka eða leikverk í heild sinni. Undir ferlið skynjun/greiningu/mat falla munnleg og skrifleg verkefni nemenda, svo sem leiklistargagnrýni og þátttaka nemenda í umræðum á önninni.

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur