Landafræði

LAN 203 Hagræn landafræði

Undanfari: LAN 103

Áfangamarkmið
Náttúruauðæfi
Nemandi
átti sig á auðlindum Íslands í samanburði við auðlindir annarra landa
geri sér grein fyrir merkingu hugtaka eins og auðlind og forði og get beitt þeim á ólíka vegu
ræði um misskiptingu náttúruauðæfa
flokki auðlindir og greini bæði náttúrufarsleg og efnahagsleg vandamál er tengjast nýtingu þeirra
kynnist helstu hagnýtu jarðefnum heims, svo sem iðnaðar- og byggingarefnum, hvar þau er að finna, megindráttum í myndun og efnahagslegum forsendum fyrir nýtingu þeirra
þekki helstu orkugjafa í heiminum, svo sem vatnsorku, jarðvarma, olíu, gas, kol og kjarnorku, og hvernig orka er undirstaða tæknivæddra samfélaga
kynni sér sérstaklega hagnýtingu jarðefna og orkugjafa á Íslandi og í heimabyggð
geri sér grein fyrir umhverfisáhrifum orkunotkunar í heiminum, á Íslandi og í heimabyggðinni sérstaklega
Framleiðsluatvinnuvegir
Verslun og samgöngur
Nemandi
kynni sér flutninga í lofti, á láði og legi og samkeppni milli þessara mismunandi tegunda af flutningum
kynni sér ólík samgöngukerfi og þróun þeirra
skoði mynstur flutningsleiða á landakorti og átti sig á samhengi þess við landslag og búsetumynstur
kanni umfang verslunar í heiminum og utanríkisverslun Íslands sérstaklega
þekki helstu viðskiptabandalög heims, svo sem ESB, Fríverslunarsamtök Norður-Ameríku (NAFTA), en sérstaklega þau viðskiptabandalög sem Ísland er aðili að, t.d. Fríverslunarsamtök Evrópu (EFTA), EES og Alþjóðaviðskiptastofnunina (WTO)
Nemandi
kynni sér samninga sem Ísland á aðild að, eins og Schengen-samkomulagið, og hvað í þeim felst
geri sér grein fyrir muninum á verslun og samgöngum í þróunarlöndum annars vegar og iðnríkjum hins vegar og tengslum þessa við náttúrufar á hverjum stað
kynni sér þróunarsamvinnu vel stæðra ríkja og þróunarlanda
þekki kenningar um efnahagsþróun, svo sem um áhrif miðstýringar og frjálsrar samkeppni
þekki landfræðileg einkenni vaxtarsvæða og skilgreini muninn á kjarnasvæði og jaðarsvæði
kanni áhrif aukinna fjarskipta og upplýsingatækni á verslun og samgöngur

Efnisatriði
Náttúruauðæfi, auðlindir, forði, vandamál við auðlindanýtingu, misskipting náttúruauðæfa, hagnýt jarðefni, orkugjafar, orkunotkun, framleiðsluatvinnuvegir, landbúnaður, fiskveiðar og iðnaður, upplýsingastarfsemi, umhverfisáhrif atvinnugreinanna, vinnsluaðferðir og tækniframfarir, flutningar og samkeppni í flutningum, samgöngukerfi, umfang heimsverslunar, utanríkisverslun Íslands, viðskiptabandalög, verslun og samgöngur í iðnríkjum og þróunarlöndum, þróunarsamvinna, kenningar um efnahagsþróun, miðstýring, frjáls samkeppni, vaxtarsvæði, kjarnasvæði, jaðarsvæði.

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur