LAN 103 Almenn landafræði
Áfangalýsing
Í þessum áfanga er fjallað um landafræði sem fræðigrein, notagildi hennar og tengsl við aðrar fræðigreinar. Lögð er áhersla á kortalestur og kortagerð, ýmsar gerðir loftmynda og túlkun þeirra. Fjallað er um landnýtingu á Íslandi og á heimsvísu, breytingar á notkun lands og afleiðingar þess. Skilgreint er hvað felst í skipulagi lands og á hvaða stoðum slíkt skipulag hvílir. Gerð er grein fyrir undirstöðum efnahagslífs, nýtingu auðlinda og tengslum þessara þátta. Kynnt eru grunnhugtök lýðfræðinnar, vandamál er tengjast fólksfjölgun og breytingum á búsetumynstri og loks orsakir og afleiðingar fólksflutninga. Megináhersla er á að nemendur vinni nokkur sérhæfð en fjölbreytt verkefni sem krefjist upplýsingaöflunar með margs konar miðlum og úr fjölbreyttum heimildum.
Lesa meiraLAN 203 Hagræn landafræði
Áfangalýsing
Í þessum áfanga er kynnt hvernig fólk aflar sér lífsviðurværis. Fjallað er í stórum dráttum um náttúruauðæfi, framleiðslu, verslun og samgöngur. Tekin eru fyrir dæmi og kenningar um skipulag á fjármagni, vinnuafli, samgöngum og landnýtingu í tíma og rúmi. Fjallað er um hvernig vörur og þjónusta dreifist, um landfræðileg einkenni vaxtarsvæða og um forsendur auðlindanýtingar. Gerð er grein fyrir breytingum á atvinnuháttum og atvinnuskiptingu og kannað hvernig skipulag efnahagslífs er háð ýmsum breytum. Lögð er áhersla á að nemendur vinni nokkur lítil verkefni sem meðal annars mættu tengjast atvinnulífi heimabyggðarinnar. Þá eru notaðar margvíslegar heimildir og miðlar við öflun upplýsinga um Ísland og umheiminn.
Lesa meira