Jarðfræði
JAR 203 Jarðsagan og landrekið
Undanfari: JAR 103
Í áfanganum er áhersla lögð á verkefnavinnu nemenda í tengslum við náttúruskoðun og vettvangsferðir. Nemendur fá þjálfun í túlkun jarðlagasniða, lestri jarðfræðikorta og í notkun nýjustu forrita er líkja eftir aðstæðum í jarðskorpu, s.s. við jarðskjálfta, eldgos og landrek.
Áfangamarkmið
Nemandi
geti gert grein fyrir kenningum um uppruna og aldur jarðar
geti skýrt jarðsögutöfluna og sagt frá einkennum hverrar aldar í sögu jarðar
geti fjallað um þróun lífríkis á jörðinni út frá völdum dæmum um þróun einstakra hópa lífvera
þekki mismunandi kenningar um massadauða lífvera
geti skýrt myndun mismunandi jarðlaga og tengt við ástand umhverfis á myndunartíma þeirra, s.s. hitastig og orku í umhverfinu
- geti fjallað um ísaldir og kenningar um orsakir þeirra
- geti gert grein fyrir jarðsögu Íslands með tilliti til mismunandi þátta
o landreks
o loftslags
o jarðlaga
o eldvirkni
o lífríkis
- geti fjallað almennt um landrek og skýrt með tilliti til þess myndun valinna svæða á jörðinni
- þekki helstu gerðir jarðmyndana hér á landi og geti tengt þær ríkjandi umhverfisaðstæðum á myndunartíma þeirra
Efnisatriði
Almenn jarðsaga: Uppruni og myndun jarðar, tímatal, aldur jarðar, aldursákvarðanir, jarðsögutaflan, upphafs- og frumlífsöld, fornlífs-, miðlífs- og nýlífsaldirnar og skipting þeirra. Þróun lífs, fyrstu lífverur, breytingar í lífríki, þróun einstakra hópa lífvera, s.s. fiska, lindýra, skriðdýra, fugla og spendýra, þróun mannsins. Massadauði lífvera og kenningar þar um, myndun fjallgarða og loftslagsbreytingar, ísaldir.
Landrek: Plötukenningin, jarðskorpuhreyfingar, s.s. plötumót, plötuskil, þverbrotabelti og jarðskjálftar. Jarðfræði einstakra svæða með tilliti til landreks, heitir reitir og kenningar um uppruna kviku. Opnun N-Atlantshafs og myndun Íslands.
Jarðsaga Íslands: Aldur landsins, eldvirkni og þróun gosbelta, þróun lífríkis og loftslagsbreytingar, ísöldin og aðdragandi hennar, kenningar um ísaldir, kuldaskeið og hlýskeið, síðjökultími og nútími, jarðlög frá tertíer- og kvarter- tíma á Íslandi, jarðfræði einstakra svæða. Ísland og landrekskenningin.