Íþróttafræði
ÍÞF 102 Þjálfun barna og unglinga
Áfangamarkmið
Nemandi
læri um hlutverk þjálfara í íþróttum
þjálfist í skipulagi þjálfunar og markmiðssetningu
læri að skipuleggja einstakar æfingastundir
læri muninn á þjálfun barna og fullorðinna
þekki helstu þjálfunaraðferðir
geti nýtt sér upplýsingatækni við skipulag þjálfunar
Efnisatriði
Kennslufræði, aðferðir við tæknikennslu, heildaraðferð, hlutaaðferð, áætlanagerð, ársáætlun, mánaðaráætlun, æfingaseðill, upphitun, aðalþáttur, niðurlag, handbók þjálfarans. Þjálfarinn, hlutverk þjálfara, framkoma, samskipti, stjórnun, stefnuyfirlýsingar ÍSÍ, skipulag íþróttahreyfingar. Þjálffræði, þrekþættir. Íþróttameiðsl, viðbrögð við meiðslum, meðferð tognana, öryggisatriði, næring íþróttafólks, fíkniefni, þroskaþættir.
Dæmi um útfærslu námsmats:
Mat á verkefnum
Skriflegt próf