Íþróttafræði

ÍÞF 102 Þjálfun barna og unglinga

Áfangalýsing

Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur læri um hlutverk þjálfara og leiðbeinenda í íþróttastarfi, sérstaklega við þjálfun barna á aldrinum þriggja til tólf ára. Lögð er áhersla á skipulag þjálfunar, áætlanagerð og markmiðssetningu. Nemendur öðlast undirstöðuþekkingu í kennslu- og aðferðafræði íþrótta og hvernig skuli bregðast við íþróttameiðslum. Fjallað er um mataræði íþróttamanna og áhrif fíkniefna á afkastagetu og árangur. Áfanginn er bóklegur. Nemendur fá þjálfun í áætlanagerð.

Lesa meira
 

ÍÞF 111 Félagsmál

Áfangalýsing

Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur læri um uppbyggingu frjálsra félagasamtaka, sérstaklega íþróttafélaga. Nemendur fái þjálfun í stjórnunarstörfum, s.s. að sjá um fundarsköp, stjórna fundum og skrásetja fundargerðir, læri um helstu hlutverk stjórnarmanna, eins og hlutverk formanns, varaformanns, gjaldkera, ritara og meðstjórnenda. Nemendur læri um mikilvægi stefnumótunar og skrásetningar markmiða í félagsstarfi, læri um uppbyggingu félaga og fái að kynnast skipulagi og helstu skipuritum sem starfað er eftir. Nemendur fái að kynnast ýmsum þáttum í almennu félagsstarfi, s.s. skipulagi og undirbúningi ferða, fararstjórn og stjórnun kvöldvöku. Í áfanganum er einnig komið inn á samskipti heimila og frjálsra félaga, jafnrétti, vímuvarnastefnu íþróttafélaga, hópstarf, ræðumennsku og stofnun félaga.

Lesa meira
 

ÍÞF 203 Líffæra- og hreyfifræði

Áfangalýsing

Í áfanganum verður fjallað um starfsemi mannslíkamans með áherslu á bein og vöðva. Sérstök áhersla verður lögð á þau líffæri og líffærakerfi sem tengjast hreyfingum mannslíkamans. Fjallað verður um bein, bönd og liðamót, liðfleti og liðpoka. Einnig verður fjallað um hreyfingu í liðamótum og stefnu hreyfinga. Fjallað verður um einstaka vöðva, upptök þeirra, festu og starf. Fjallað er um hugtök og grundvallaratriði hreyfifræðinnar og komið inn á tækni íþróttagreina. Enn fremur er fjallað um rétta lyftitækni, starfsstellingar og hreyfingar við vinnu.

Lesa meira
 

ÍÞF 222 Íþróttasálfræði

Áfangalýsing

Í áfanganum verður fjallað um helstu þætti íþróttasálarfræðinnar. Skoðuð verða ýmis áreiti sem áhrif hafa á afreksgetu íþróttamanna. Enn fremur fjallar áfanginn um spennu (streitu) og helstu spennuvalda, slökun og hugrækt af ýmsu tagi. Skoðað verður hvernig vinna má með sjálfstraust og sjálfsmynd íþróttamannsins í því skyni að bæta árangur. Fjallað verður um muninn á einstaklings- og hópíþróttum og farið í áhrif félagslegra þátta á íþróttamanninn.

Lesa meira
 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur