Íþróttir

ÍÞR 121 Íþróttir og heilsurækt I

Áfangalýsing

Áfanginn er verklegur. Nemendur fá alhliða hreyfireynslu með fjölbreytni að leiðarljósi. Lögð er áhersla á fjölbreytta upphitun, styrkjandi og liðkandi æfingar, auk alhliða þolþjálfunar og leikja. Byggt er á þeim grunni sem skapast hefur í grunnskólanum. Samhliða verklegri útfærslu fræðast nemendur um íþróttir, líkamsrækt og heilsuvernd. Nemendur eru hvattir til að rækta líkama sinn sér til heilsubótar og ánægju.

Lesa meira
 

ÍÞR 131 Íþróttir og heilsurækt II

Áfangalýsing

Áfanginn er verklegur. Nemendur fá alhliða þjálfun með fjölbreytni að leiðarljósi. Lögð er áhersla á fjölbreytta upphitun, styrkjandi og liðkandi æfingar, alhliða þolþjálfun og leiki. Byggt er á þeim grunni sem skapast hefur í grunnskólanum og bætt við eftir aðstæðum, þ.e. sem flestar aðferðir til líkams- og heilsuræktar eru kynntar og einnig hvað nánasta umhverfi hefur upp á að bjóða í sambandi við heilsurækt. Nemendur fræðast um íþróttir, líkamsrækt og heilsuvernd. Stuðla skal að því að nemendur geti sjálfir ræktað líkama sinn sér til heilsubótar og ánægju.

Lesa meira
 

ÍÞR 221 Upphitun og þrekþættir

Áfangalýsing

Í áfanganum er lögð áhersla á verklega og fræðilega þætti upphitunar og þols fyrir einstaklinginn. Farið er yfir mikilvægi upphitunar við líkamlega þjálfun og unnið með æfingar og leiki sem henta fyrir mismunandi líkams- og heilsurækt. Farið er yfir það helsta sem á sér stað í líkamanum við upphitun og þá kosti sem góð upphitun hefur í för með sér. Í áfanganum er einnig fjallað um þol og þolþjálfun og hvernig byggja megi upp þol og viðhalda því. Farið er yfir muninn á loftháðri og loftfirrtri þolþjálfun, auk þess sem farið verður yfir almennt og sérhæft þol tengt ýmsum íþróttagreinum. Þá verður nemendum kynnt próf sem nýta má til mælingar á þoli. Nemendur verða hvattir til að tengja tölvu- og upplýsingatækni við skrásetningu upplýsinga og vinnu að áætlanagerð.

Í áfanganum er einnig farið yfir verklega og fræðilega þætti kraft- og liðleikaþjálfunar. Farið er yfir mikilvægi líkamsstyrks (krafts) fyrir stoðkerfi líkamans, líkamsbeitingu, líkamsreisn og kraftþjálfun fyrir helstu vöðvahópa líkamans. Þá er komið inn á mikilvægi réttrar líkamsbeitingar við kraftþjálfun og fjölbreytta möguleika á þjálfun krafts, s.s. með eigin líkamsþunga eða í tækjasal. Farið er yfir mikilvægi liðleika fyrir líkamann og áhrif liðleikaæfinga á vöðva og liðamót. Farið er yfir æfingar sem þjálfa liðleika og helstu aðferðir sem beitt er. Komið er inn á slökun og mikilvægi hennar í nútímasamfélagi. Nemendum er kynnt próf sem mæla kraft og liðleika.

Lesa meira
 

ÍÞR 231 Þjálffræði, líkamsbeiting og áætlanagerð

Áfangalýsing

Í áfanganum er lögð áhersla á verklega og fræðilega þætti

tengda réttri líkamsbeitingu og skyndihjálp. Lögð er áhersla á mikilvægi þess að skynja

líkamsstöðu sína og að geta beitt líkamanum rétt við ýmis störf í daglega lífinu. Farið er yfir helstu grunnatriði skyndihjálpar, þ.e. fyrstu viðbrögð við slysum og meiðslum. Í áfanganum er einnig fjallað um næringu og mataræði og áhrif tóbaks og áfengis á líkamann. Fjallað er um hvað felst í hollri og góðri næringu með tilliti til íþrótta og daglegrar fæðu, einnig gefnar ráðleggingar um hentugt mataræði og matarvenjur. Þá verður rætt um viðhorf til fíkniefna og nemendur fræddir um skaðleg áhrif

þeirra á líkamann.

Í áfanganum verða einnig teknir fyrir verklegir og fræðilegir þættir tengdir skipulagi þjálfunar. Nemendur fá að gera eigin þjálfunaráætlun og fjallað er um líkamleg og sálræn áhrif þjálfunar. Farið er yfir helstu líffræðilegar forsendur þjálfunar, svo sem hvernig vöðvar, liðir, taugar og blóðrás starfar. Fjallað er um gildi reglulegrar

og skipulagðrar líkamsþjálfunar og nemendum gerð grein fyrir ábyrgð á eigin líkama. Í

áfanganum er fjallað um réttan útbúnað til líkams- og heilsuræktar. Nemendur fá fræðslu um gildi þess að lifa heilbrigðu lífi og fá að kynnast möguleikum umhverfisins til líkams- og heilsuræktar. Í áfanganum er að auki unnið markvisst að því að nemendur fái alhliða hreyfireynslu þar sem reynir á alla helstu vöðvahópa líkamans og fjölbreytni og ánægja er höfð að leiðarljósi.

Lesa meira
 

ÍÞR 301 3A1 3B1 3C1 Líkams- og heilsurækt

Áfangalýsing

Meginviðfangsefni áfanganna er fjölbreytt líkamsrækt þar sem áhersla er lögð á kraft- og þolæfingar. Áfangar innihalda mismunandi kynningarþætti, s.s. ratleiki, þolfimi, sundleikfimi, útivist og fjallgöngu. Unnið er með atriði eins og samvinnu, tillitssemi og háttvísi.

Lesa meira
 

ÍÞR 311 Fimleikar

Áfangalýsing

Í áfanganum er lögð áhersla á fjölbreytta og alhliða líkamsþjálfun tengda grunnþáttum fimleika. Nemendur vinna áætlanir og reyna þær í kennslustundum. Komið er inn á samvinnu og mikilvægi öryggisatriða, s.s. örugga móttöku í stökkum og í ýmsum æfingum.

Lesa meira
 

ÍÞR 321 Knattspyrna

Áfangalýsing

Í áfanganum er lögð áhersla á fjölbreytta og alhliða líkamsþjálfun tengda knattspyrnu. Nemendur fá þjálfun í áætlanagerð, bæði fyrir sig og hópa, sem þeir reyna í kennslustundum. Leikrænar æfingar verða notaðar til þjálfunar í tækni greinarinnar.

Lesa meira
 

ÍÞR 391 Sund

Áfangalýsing

Í áfanganum er lögð áhersla á fjölbreytta og alhliða líkamsþjálfun tengda sundi. Nemendur fá þjálfun í áætlanagerð, fyrir sig og hópa, sem þeir síðan reyna í kennslustundum. Samhliða ýmsum tækniatriðum sundíþróttarinnar verður farið í sundleikfimi.

Lesa meira
 

ÍÞR 301 Opinn áfangi / trimm/íþróttagrein

Áfangalýsing

Í þessum áfanga er gert ráð fyrir að hægt sé að taka fyrir afmarkað efni sem ekki er að framan talið en sérstakur áhugi er á eða hentar vel í einstökum skólum. òtfærsla í höndum framhaldsskóla.


Dæmi um áfanga

Fjallganga (ÍÞR 3F1)

Hjólreiðar (ÍÞR 3H1)

Vetraríþróttir (ÍÞR 3V1)

Lesa meira
 

ÍÞR 4X1 Opinn áfangi / trimm/íþróttagrein

Áfangalýsing

Í þessum áfanga er gert ráð fyrir að nemendur fái dýpri innsýn í ákveðna grein íþrótta eða líkamsræktaraðferð. Nemendur fá verklega þjálfun tengda viðkomandi íþrótt og aukna fræðslu um séreinkenni íþróttagreinar. Einnig fá nemendur æfingu í að vinna að undirbúningi eigin þjálfunar. òtfærsla er í höndum framhaldsskóla.

Lesa meira
 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur