Íþróttir
ÍÞR 371 Badminton (hnit)
Undanfari: ÍÞR 211 eða 231
Áfangalýsing
Í áfanganum er lögð áhersla á alhliða líkamsþjálfun og leikið badminton (hnit) samhliða fjölbreyttum æfingum sem tengjast greininni. Nemendur vinna áætlanir og reyna þær í kennslustundum.
Áfangamarkmið
Nemandi
Íþróttir
þjálfist í tækni og leikfræði í badminton
Líkams- og heilsurækt
taki þátt í verklegum æfingum sem sýna hvernig nýta má badminton til líkamsræktar
leysi af hendi verkefni sem snúa að þjálfun þrekþátta badmintons
hafi fengið tækifæri til þess að reyna eigin áætlun
Félags-, tilfinninga- og siðgæðissvið
iðki hnit/badminton sér til ánægju og skemmtunar
taki þátt í æfingum og leikjum í badminton sem stuðla að jákvæðum samskiptum kynja
taki þátt í leikjum sem stuðla að samvinnu og tillitssemi
Þekkingarsvið
læri og tileinki sér helstu reglur í badminton
leysi af hendi verkefni sem snúa að undirbúningi eigin æfingaáætlunar
afli, setji fram og meti upplýsingar, með aðstoð upplýsingatækni, um badminton
í heiminum, mismunandi útfærslur og æfingar
Efnisatriði
Hnit, badminton, líkamsstaða, grip, forhönd, bakhönd, uppgjöf, staðsetning, hreyfing, að slá bolta, skellur, þjálfun, leikfræði, leikvöllur, einliðaleikur, tvíliðaleikur, leikreglur.
Námsmat
Sjá dæmi um útfærslu í kaflanum um námsmat hér að framan.