Íþróttir
ÍÞR 231 Þjálffræði, líkamsbeiting og áætlanagerð
Undanfari: ÍÞR 121 og 131
Áfangamarkmið
Íþróttir
Nemandi
leysi af hendi æfingar og leiki sem innihalda fjölbreytta hreyfingu
leysi af hendi æfingar og leiki sem viðhalda og bæta tækni íþróttagreina
Líkams- og heilsurækt
Nemandi
þjálfist í réttri líkamsbeitingu við ólíkar aðstæður
þjálfist í réttri beitingu líkamans við dagleg störf
fræðist um fjölbreyttan útbúnað til líkams- og heilsuræktar
þjálfist í að nýta sér möguleika til heilsuræktar í umhverfi skóla og úti í náttúrunni
þjálfist í æfingum og ýmsum hreyfingum sem stuðla að bættri líkamsbeitingu
Félags-, tilfinninga- og siðgæðissvið
Nemandi
leysi af hendi æfingar og leiki sem viðhalda og bæta samskipti
taki þátt í leikjum og æfingum sem hafa áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til íþrótta og líkams- og heilsuræktar
fái tækifæri til að greina frá afstöðu sinni til heilbrigðs lífsstíls
Þekkingarsvið
Nemandi
öðlist þekkingu í sambandi við fyrstu viðbrögð við slysum eða minni háttar meiðslum
öðlist þekkingu á mismunandi áhrifum næringarefna og mataræðis á líkamann
öðlist þekkingu á skaðlegum áhrifum vímuefna á líkamann
leysi af hendi verkefni sem snúa að skipulagningu eigin þjálfunar
öðlist þekkingu á forsendum og áhrifum þjálfunar á líkama og heilsu
öðlist grundvallarþekkingu á klæðnaði til útivistar af ýmsu tagi
nýti sér tölvu- og upplýsingatækni við
skipulagningu þjálfunar
skrásetningu á eigin þjálfun
útreikninga á árangri
framsetningu á niðurstöðum byggðum á útreikningum um eigin árangur
Efnisatriði
Líkamsbeiting, hryggur, liðþófar, taugar, hryggvöðvar, kviðvöðvar, álag, bakverkur, bakþjálfun, líkamsstaða, líkamsbeiting, vinnustellingar, vinnuborð, setstelling, álagsmeiðsli, lyfta, ýta, draga, skyndihjálp, hjartahnoð, blástursaðferð, lífgun úr dauðadái, hjartsláttur, púls, læst hliðarlega, harðsperrur, íþróttaskór, tognun, kæling, þrýstiumbúðir, beinbrot, næring, kolvetni, fita, hvíta, steinefni, fjörefni, vatn, vítamín, samsetning fæðu, trefjar, líkamsþyngd, orkujafnvægi, máltíðir, matarvenjur, vímuefni, tóbak, áfengi, eiturlyf, lyfjaneysla í íþróttum, hormónar. Skipulag þjálfunar, æfingaáætlun, langtímaáætlun, vikuáætlun, þjálfunarástand, þrekmælingar, einstaklingsbundin þjálfun, æfingadagbók, álag, þjálfunarpúls, spjallhraði, útbúnaður, hlaupaskór, æfingaklæðnaður, vökvajafnvægi, blóðsykur, áhrif þjálfunar á líkamann, heilbrigður lífsstíll.
Námsmat
Áfangar í íþróttum — líkams- og heilsurækt að loknum leiðum A eða B í brautarkjarna
Í seinni hluta náms í íþróttum — líkams- og heilsurækt eru settir fram fjölbreyttir valáfangar. Það er síðan í höndum hvers skóla að setja fram eða móta áfanga sem eru í boði hverju sinni. Í áföngum 3x1 og 4x1 er stefnt að því að nemendur fái enn frekari innsýn í ýmsar greinar íþrótta eða líkams- og heilsurækt. Lögð er áhersla á verklega þjálfun tengda sérkennum viðkomandi áfanga, s.s. þekkingu á helstu leikreglum og útfærslu og þjálfun helstu tækniatriða í íþróttagrein, eða að kynnast fjölbreyttum leiðum að líkams- og heilsurækt. Einnig skal sækjast eftir því að nemendur fái æfingu í að vinna að undirbúningi eigin þjálfunar.
Helstu viðfangsefni í líkams- og heilsurækt eru
að fara yfir ýmsa möguleika, s.s. fjölbreytta líkams- og heilsurækt, útivist eða íþróttir sem nemendur geta stundað til eflingar líkama og heilsu
Helstu viðfangsefni í íþróttagreinum eru
uppbygging þrekþátta viðkomandi íþróttagreinar, s.s.
sérhæfð þolþjálfun
sérhæfð kraftþjálfun
sérhæfð hraðaþjálfun
sérhæfð liðleikaþjálfun
helstu tækniatriði íþróttagreinar og útfærsla þeirra
undirstöðuatriði í leikskipulagi
helstu reglur íþróttagreinar