Íþróttir
ÍÞR 221 Upphitun og þrekþættir
Undanfari: ÍÞR 121 og 131
Áfangamarkmið
Íþróttir
Nemandi
þjálfist í fjölbreyttri upphitun
stundi fjölbreytta þolþjálfun
taki þátt í fjölbreyttri kraftþjálfun í tengslum við mismunandi íþróttagreinar
taki þátt í fjölbreyttri liðleikaþjálfun í tengslum við ýmsar íþróttagreinar
Líkams- og heilsurækt
Nemandi
taki þátt í fjölbreyttri upphitun fyrir líkams- og heilsurækt
taki þátt í markvissri þolþjálfun í tengslum við eigið skipulag á þjálfun
taki þátt í sérhæfðri þolþjálfun mismunandi íþrótta
stundi kraftþjálfun fyrir mismunandi íþróttagreinar
taki þátt í markvissri kraftþjálfun í tengslum við skipulag þjálfunar
taki þátt í liðleikaþjálfun fyrir helstu vöðvahópa líkamans
fái tækifæri til að mæla eigin þoltölu, kraft og liðleika
Félags-, tilfinninga- og siðgæðissvið
Nemandi
taki þátt í leikjum og æfingum sem stuðla að bættum samskiptum kynjanna, s.s. háttvísi og jafnrétti
taki þátt í fjölbreyttum æfingum í leik og íþróttum sem efla samvinnu og samskipti
Þekkingarsvið
Nemandi
öðlist þekkingu á mikilvægi markvissrar upphitunar fyrir íþróttaiðkun eða líkams- og heilsurækt
skipuleggi eigin þolþjálfun fyrir lengri tíma
skilji mikilvægi þolþjálfunar fyrir hjarta og blóðrásarkerfi
öðlist þekkingu á mikilvægi markvissrar kraft- og liðleikaþjálfunar
skipuleggi eigin kraft- og liðleikaþjálfun yfir ákveðið tímabil
skilji mikilvægi kraft- og liðleikaþjálfunar fyrir stoðkerfi líkamans
geti nýtt sér öndunartækni til slökunar fyrir sál og líkama
nýti sér tölvu- og upplýsingatækni við skipulagningu þolþjálfunar og útreikninga á árangri
Efnisatriði
Upphitun, almenn upphitun, sérhæfð upphitun, óvirk upphitun, hjartsláttur, púls, líkamshiti, teygjuæfingar, þol, þolþjálfun, grunnþol, sérhæft þol, loftháð þol, loftfirrt þol, loftháð orkumyndun, loftfirrt orkumyndun, mjólkursýra, þjálfunarástand, þjálfunarpúls, hvíldarpúls, hámarkspúls, þjálfunaraðferðir, hraðaleikur.
Kraftur, kraftþol, hraðakraftur, hámarkskraftur, kyrrstöðukraftur, kraftþjálfun, stöðvaþjálfun, hringþjálfun, beygjur, réttur, vöðvar, kviðvöðvar, liðleiki, hreyfanleiki, liðir, liðamót, bönd, bandvefur, virk teygja, óvirk teygja, spennu- og teygjuaðferð, slökun, öndun, slökunartækni, slökunarstaða.
Námsmat