Íþróttir

ÍÞR 121 Íþróttir og heilsurækt I

Áfangalýsing

Áfanginn er verklegur. Nemendur fá alhliða hreyfireynslu með fjölbreytni að leiðarljósi. Lögð er áhersla á fjölbreytta upphitun, styrkjandi og liðkandi æfingar, auk alhliða þolþjálfunar og leikja. Byggt er á þeim grunni sem skapast hefur í grunnskólanum. Samhliða verklegri útfærslu fræðast nemendur um íþróttir, líkamsrækt og heilsuvernd. Nemendur eru hvattir til að rækta líkama sinn sér til heilsubótar og ánægju.

Lesa meira
 

ÍÞR 131 Íþróttir og heilsurækt II

Áfangalýsing

Áfanginn er verklegur. Nemendur fá alhliða þjálfun með fjölbreytni að leiðarljósi. Lögð er áhersla á fjölbreytta upphitun, styrkjandi og liðkandi æfingar, alhliða þolþjálfun og leiki. Byggt er á þeim grunni sem skapast hefur í grunnskólanum og bætt við eftir aðstæðum, þ.e. sem flestar aðferðir til líkams- og heilsuræktar eru kynntar og einnig hvað nánasta umhverfi hefur upp á að bjóða í sambandi við heilsurækt. Nemendur fræðast um íþróttir, líkamsrækt og heilsuvernd. Stuðla skal að því að nemendur geti sjálfir ræktað líkama sinn sér til heilsubótar og ánægju.

Lesa meira
 

ÍÞR 221 Upphitun og þrekþættir

Áfangalýsing

Í áfanganum er lögð áhersla á verklega og fræðilega þætti upphitunar og þols fyrir einstaklinginn. Farið er yfir mikilvægi upphitunar við líkamlega þjálfun og unnið með æfingar og leiki sem henta fyrir mismunandi líkams- og heilsurækt. Farið er yfir það helsta sem á sér stað í líkamanum við upphitun og þá kosti sem góð upphitun hefur í för með sér. Í áfanganum er einnig fjallað um þol og þolþjálfun og hvernig byggja megi upp þol og viðhalda því. Farið er yfir muninn á loftháðri og loftfirrtri þolþjálfun, auk þess sem farið verður yfir almennt og sérhæft þol tengt ýmsum íþróttagreinum. Þá verður nemendum kynnt próf sem nýta má til mælingar á þoli. Nemendur verða hvattir til að tengja tölvu- og upplýsingatækni við skrásetningu upplýsinga og vinnu að áætlanagerð.

Í áfanganum er einnig farið yfir verklega og fræðilega þætti kraft- og liðleikaþjálfunar. Farið er yfir mikilvægi líkamsstyrks (krafts) fyrir stoðkerfi líkamans, líkamsbeitingu, líkamsreisn og kraftþjálfun fyrir helstu vöðvahópa líkamans. Þá er komið inn á mikilvægi réttrar líkamsbeitingar við kraftþjálfun og fjölbreytta möguleika á þjálfun krafts, s.s. með eigin líkamsþunga eða í tækjasal. Farið er yfir mikilvægi liðleika fyrir líkamann og áhrif liðleikaæfinga á vöðva og liðamót. Farið er yfir æfingar sem þjálfa liðleika og helstu aðferðir sem beitt er. Komið er inn á slökun og mikilvægi hennar í nútímasamfélagi. Nemendum er kynnt próf sem mæla kraft og liðleika.

Lesa meira
 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur