Íþróttagrein
ÍÞG 1X2 Íþróttagrein
Undanfari: ÍÞF 102
Dæmi um áfanga
- Skíði
- Skautar
- Júdó
- Tennis
- Borðtennis
- Karate
- Glíma
- Golf
- Ólympískar lyftingar
- Skvass
- Þríþraut
- Fjallganga
- Hjólreiðar
Áfangamarkmið
Nemandi
- læri að leiðbeina börnum um undirstöðuatriði í viðkomandi grein
- þjálfist í tækni eða útfærslu greinarinnar
- læri að skipuleggja þjálfun í greininni fyrir börn og unglinga
- þekki helstu þjálfunaraðferðir
- taki þátt í fjölbreyttum æfingum og leikjum sem tilheyra greininni
- læri um muninn á þjálfun barna og fullorðinna
- geti nýtt sér upplýsingatækni við skipulag þjálfunar
Efnisatriði
Tenging við viðkomandi grein. Æfingaáætlun, skipulag æfingatíma í greininni.
Dæmi um útfærslu námsmats
- Mat á verkefnum
- Mat á gerð æfingaseðils
- Mat á æfingakennslu
- Skriflegt próf