Íslenska

ÍSL 203 Bókmenntir og mál- og menningarsaga

Undanfari: ÍSL 103 Læsi, ritun, tjáning og málfræði

 

Áfangalýsing:

Í áfanganum er lögð áhersla á að fjalla um sögu máls og menningar frá frumnorrænum tíma til okkar daga. Nemendur kynnast nokkrum atriðum í sögu íslensks máls frá öndverðu til okkar daga og kynnast helstu mállýskum á Íslandi. Nemendur kynnast norrænni goðafræði og hugmyndaheimi norrænna manna til forna auk þess sem þeir fá tækifæri til að tjá sig í ræðu og riti um efni áfangans. Nemendur kynnast helstu aðferðum við meðferð heimilda í ritun.

 

Námsmarkmið:

Nemandi

-       kannist við söguleg tengsl tungumáls og menningar

-       fái innsýn í meginatriði íslenskrar málstefnu

-       skoði nokkur dæmi um rúnaristur

-       þekki dæmi um áhrif norrænnar tungu á önnur málsvæði

-       þekki helstu atriði í heimssögu norrænnar goðafræði

-       viti deili á helstu goðum í norrænni goðafræði og hlutverki þeirra, vættum og öðrum átrúnaði

-       þekki helstu mállýskur á Íslandi

-       kynnist dæmum um uppruna og skyldleika orða

-       velti fyrir sér orðasmíð og merkingu

-       þekki íslenska nafnsiði

-       greini mismunandi málsnið og orðræðu við ólíkar aðstæður

-       ræði um og myndi sér skoðun á íslenskri málstefnu

-       fái tækifæri til að gagnrýna framsögn annarra og taka við gagnrýni á eigin framsögn

-       fái tækifæri til að skoða myndbönd, myndlist eða margmiðlunarefni tengt norrænum goðsögnum

-       skrifi ritgerð eða ritdóm um kjörbók

-       kynnist helstu aðferðum við meðferð heimilda í ritun

-       læri að byggja upp heimildaritgerð

 

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur