Íslenska
ÍSL 193 Undirbúningsáfangi fyrir frekara nám
Áfangalýsing
Undanfari: enginn
Áfanginn er ætlaður nemendum á almennri braut sem hafa ekki staðist þær kröfur sem settar eru um nám í framhaldskóla.
Markmið áfangans eru að nemandi:
· öðlist þekkingu og leikni til að stunda áframhaldandi nám í framhaldsskóla
· þjálfist í lestri, auki leshraða sinn og bæti almennan lesskilning
· auki færni sína í skipulegri tjáningu, munnlegri og skriflegri
· læri undirstöðuatriði málfræði og geti stafsett sem réttast
· kynnist handbókum og hjálparforritum og æfist í notkun þeirra
Námsfyrirkomulag:
· lesnir verða fjölbreyttir textar og unnin verkefni í tengslum við þá
· nemendur hlusta á efni , horfa á myndir og tjá sig um það í ræðu og riti
· í áfanganum eru bæði unnin einstaklings- og hópverkefni
Námsmat
· Í áfanganum er fyrst og fremst leitast við að nota leiðsagnarmat í þeim tilgangi að nemandi fái upplýsingar um eigin styrkleika ásamt leiðbeiningum um hvernig hann getur bætt frammistöðu sína.
· námsmat í áfanganum getur verið margvíslegt t.d. kennaramat, jafningjamat eða sjálfsmat. Matið getur byggst á könnunum, munnlegum verkefnum, skriflegum verkefnum einstaklings eða hópa.