Íslenska
ÍSL 633 Mál og menningarheimur barna og ungmenna
Undanfari: 15 eininga kjarni í íslensku eða ÍSL 212 Mál- og menningarsaga *
Áfangamarkmið
Nemandi
kannist við þróunarsögu íslenskra barna- og unglingabóka
átti sig á hugmyndafræðilegum tengslum (skyldleika) íslenskra og erlendra barna- og unglingabóka
geti fjallað af skilningi og þekkingu um íslenskar barna- og unglingabækur
geti nýtt sér helstu bókmenntafræðileg hugtök sem tengjast barna- og unglingabókum
lesi vandlega nokkrar íslenskar barna- og unglingabækur frá ýmsum tímum
lesi gagnrýna umfjöllun um barna- og unglingabækur í blöðum og tímaritum
geri sér grein fyrir helstu stigum máltöku barna
geri sér grein fyrir því hvað lærist fljótt og hvað lærist seint í máltöku
kannist við helstu rannsóknir á íslensku barnamáli
átti sig á helstu tal- og málgöllum
öðlist hæfni til að velja lesefni handa börnum og unglingum og leiðbeina þeim um bókaval
kynnist ýmsum flokkum barna- og unglingabóka og geri sér grein fyrir ólíku efni þeirra, eðli og tilgangi
kynnist öðrum birtingarformum barna- og unglingabóka, t.d. leikritum, kvikmyndum, leikjum og margmiðlunarefni
vinni undir leiðsögn kennara að kynningum sem fela í sér greiningu texta, upplýsingaöflun og lestur fræðitexta
fái tækifæri til að nýta sér margmiðlunarefni sem unnið hefur verið í tengslum við efnið
nýti tölvutækni til að ganga frá textum til verkefnaskila, útgáfu eða birtingar á vef/neti
Efnisatriði
Nemendur fræðast um uppruna barna- og unglingabókmennta, hlutverk þeirra og feril í gegnum aldirnar. Þeir kynnast ýmsum flokkum barna- og unglingabókmennta og gera sér grein fyrir ólíku efni þeirra, eðli og tilgangi. Nemendur þjálfast í að lesa barna- og unglingabækur á gagnrýninn hátt og skilgreina efni þeirra í ræðu og riti. Jafnframt lesa nemendur yfirlitsgreinar um málþroska, máltöku og ritun barna og fá yfirlit yfir íslenskar rannsóknir um þessi efni. Nemendur kynnast tímaritum, greinasöfnum og ritröðum sem fjalla um barna- og unglingabókmenntir, barnamál og máltöku og fá tækifæri til að kynna sér kvikmyndir eða leikrit sem gerð hafa verið fyrir börn og unglinga, svo og myndbönd um málþroska og máltöku barna. Nemendur kynnast einnig margmiðlunarefni sem hæfir áfanganum og fá tækifæri til að nota tölvu við frágang verkefna. Gerð er krafa um nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð.
Námsmat
Í áfanganum má t.d. meta vinnu nemenda í kennslustundum, fyrirlestra og skrifleg verkefni.
* Þessi undanfari er hugsaður á þann hátt að nemendur í starfsnámi geti einnig valið hann til viðbótar kjarnaáföngum sínum í íslensku sem hluta af frjálsu vali.