Íslenska
ÍSL 613 Skáldsögur og almenn bókmenntafræði
Undanfari: 15 eininga kjarni í íslensku
Áfangamarkmið
Nemandi
kynnist þróunarsögu íslenskra smásagna og skáldsagna
átti sig á hugmyndafræðilegum tengslum (skyldleika) íslenskrar og erlendrar sagnagerðar
geti fjallað af skilningi og þekkingu um íslenskar skáldsögur og smásögur
geti nýtt sér helstu bókmenntafræðileg hugtök sem tengjast skáldsögum og smásögum
lesi vandlega nokkrar íslenskar smásögur og skáldsögur frá ýmsum tímum
kynnist öðrum birtingarformum skáldskapar, t.d. leikritum, kvikmyndum og Netinu
vinni einn og/eða í hópi undir leiðsögn kennara að kynningum sem fela í sér greiningu texta, upplýsingaöflun og lestur fræðitexta
kynnist vinnubrögðum sem viðhöfð eru í rannsóknarritgerðum
fái tækifæri til að nýta sér margmiðlunarefni sem unnið hefur verið í tengslum við efnið
nýti tölvutækni til að ganga frá textum til verkefnaskila, útgáfu eða birtingar á vefsíðum á Netinu
Efnisatriði
Unnið er með íslenskar skáldsögur og smásögur allt frá upphafi skáldsagna- og smásagnagerðar til nútímans og valin dæmi af erlendri sagnahefð kynnt. Nemendur kynnast tímaritum, greinasöfnum og ritröðum sem fjalla um bókmenntaleg efni og kynna sér kvikmyndir og leikrit sem gerð hafa verið eftir íslenskum smásögum og skáldsögum. Nemendur fá tækifæri til að tjá sig bæði munnlega og skriflega um efni áfangans. Þeir kynnast einnig margmiðlunarefni sem hæfir áfanganum og fá tækifæri til að nota tölvu við frágang verkefna. Gerð er krafa um nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð.
Námsmat
Í áfanganum má t.d. meta vinnu nemenda í kennslustundum, fyrirlestra og skrifleg verkefni.