Íslenska

ÍSL 603 Íslensk og almenn málvísindi

Undanfari: 15 eininga kjarni í íslensku

Áfangamarkmið  
Nemandi
öðlist skilning á málfélagsfræðilegum hugtökum 
átti sig á því sem einkum greinir íslenskt hljóðkerfi og íslenskan framburð frá hljóðkerfi og framburði valinna nágrannamála 
geri sér grein fyrir því að hvaða leyti íslenskar beygingar og setningagerð er frábrugðin beygingum og setningagerð valinna nágrannamála 
þjálfist í því að nýta sér málfræðileg hugtök við samanburð íslensku og erlendra mála 
þjálfist í því að þýða af erlendum málum yfir á íslensku og nýti sér um leið málfræðilega þekkingu við samanburð á málunum 
þjálfist í því að lesa fræðilegt efni um málfræði, t.d. um samanburð íslensku og erlendra mála 
kunni skil á sögulegri þróun íslensks hljóð- og beygingarkerfis 
kynnist hugmyndum um tungutækni og átti sig á hlutverki málfræði á því sviði 
geri sér grein fyrir notkun tölvutækni við þýðingarvinnu og helstu annmörkum á þýðingarvélum 
vinni einn og/eða í hópi undir leiðsögn kennara að sjálfstæðu verkefni sem tengist mállýskum eða félagsfræði máls 
kynnist vinnubrögðum sem viðhöfð eru í rannsóknarritgerðum 
fái tækifæri til að nýta sér margmiðlunarefni sem unnið hefur verið í tengslum við efnið 
nýti sér orðabækur, handbækur og leiðréttingarforrit við frágang skriflegra verkefna í tölvu 

Efnisatriði 
Nemendur þjálfast í að nota sér málfræðileg hugtök (einkum í hljóðfræði, beygingarfræði og setningafræði) til að fjalla um það sem er líkt og það sem er ólíkt með íslensku og nágrannamálunum og auka um leið skilning sinn á þessum málfræðilegu hugtökum og færni í málunum. Nemendur fá einnig þjálfun í þýðingum af erlendu máli yfir á íslensku, bæði þýðingum nytjatexta og bókmenntatexta. Nemendur kynnast einnig margmiðlunarefni sem hæfir áfanganum og fá tækifæri til að nota tölvu við frágang verkefna.

Námsmat 
Í áfanganum má t.d. meta vinnu nemenda í kennslustundum, fyrirlestra og skrifleg verkefni.

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur