Íslenska

ÍSL 503 Bókmenntir frá 1900

Undanfari: ÍSL 403 Bókmenntir og tungumál frá siðaskiptum til 1900

Áfangamarkmið  
Nemandi
öðlist innsýn í bókmenntasögu 20. aldar 
átti sig á áhrifum erlendra menningarstrauma á íslenskar bókmenntir 20. aldar
þekki helstu hugtök sem tengjast bókmenntastefnum 20. aldar
geri sér grein fyrir hlutverki bókmennta í samfélaginu og áhrifum þeirra á einstakling og samfélag
geti gert grein fyrir nokkrum helstu höfundum og verkum tímabilsins
lesi ljóð nokkurra höfunda 20. aldar og átti sig á listrænum einkennum þeirra
lesi smásögur frá upphafi aldarinnar, miðri öldinni og seinni hluta aldarinnar og átti sig á listrænum einkennum þeirra
lesi skáldsögur sem endurspegla ólíkar bókmenntastefnur og átti sig á listrænum einkennum þeirra
þekki bragarhætti og kunni að lesa úr myndmáli og stílbrögðum ljóða frá 20. öld
geti greint málfarsleg einkenni mismunandi stíls og atriði sem lúta að framsetningu máls
þjálfist í upplestri eigin texta og annarra með áherslu á ólíka viðtakendur og tilefni
þjálfist í að semja eigin texta með mismunandi stíl
skrifi ritgerð sem byggist á greiningu og túlkun texta með aðstoð hugtaka úr bókmenntafræði
vinni undir leiðsögn kennara að bókmenntakynningum sem fela í sér greiningu bókmenntatexta, upplýsingaöflun og lestur fræðitexta
fái tækifæri til að nýta sér fræðsluefni eða listrænt efni í hljóð- og myndformi, t.d. efni á myndböndum, geisladiskum, snældum og/eða margmiðlunarefni, sem unnið hefur verið í tengslum við bókmenntir tímabilsins
fái tækifæri til að fara á leiksýningu í leikhúsi og fjalli um hana
nýti tölvutækni til að ganga frá textum til verkefnaskila, útgáfu eða birtingar á vefsíðum á Netinu
læri að leita að heimildum sem tengjast efni áfangans á Netinu 

Efnisatriði 
Nemendur fást áfram við bókmenntafræðileg hugtök, s.s. tíma og umhverfi, byggingu, stíl, boðskap, persónusköpun, minni, myndmál og vísanir. Nemendur þjálfast í sjálfstæðri túlkun bókmenntatexta, kynnast endurnýjun ljóðformsins og átta sig á helstu einkennum óhefðbundinna ljóða. Nemendur athuga sérstaklega málfarsleg einkenni mismunandi stíls og atriði sem lúta að framsetningu máls. Nemendur fá jafnframt þjálfun í því að skrifa eða líkja eftir mismunandi stíl, skrifa samtöl, lýsingar og fleira. Gerð er krafa um nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð. Nemendur fá tækifæri til að tjá sig bæði munnlega og skriflega um efni áfangans og fara í leikhús. Þeir kynnast einnig efni á sviði myndlistar, tónlistar eða margmiðlunar sem hæfir áfanganum og fá tækifæri til að nota tölvu við frágang og birtingu verkefna.

Námsmat 
Í áfanganum má t.d. meta einstaklings- og hópverkefni tengd hugmyndum og málfarslegum einkennum mismunandi stíls sem endurspeglast í bókmenntum 20. aldar. Námsmat byggist að öðru leyti á þekkingu, skilningi og greiningu á íslenskum bókmenntum tímabilsins, hugmyndafræði þeirra og stíl.

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur