Íslenska

ÍSL 303 Bókmenntir og tungumál frá landnámi til siðaskipta

Undanfari: ÍSL 212 Mál- og menningarsaga

Áfangamarkmið
Nemandi
átti sig á skiptingu bókmenntasögunnar í tímabil óskráðra og skráðra bókmennta
átti sig á hvenær menn hyggja að einkum hafi verið lögð stund á hverja bókmenntagrein á tímabilinu 800-1550 
þekki forna bragarhætti, a.m.k. fornyrðislag, ljóðahátt og dróttkvæðan hátt 
þekki sögu helstu eddukvæða 
átti sig á skiptingu eddukvæða í goðakvæði og hetjukvæði
þekki helstu persónur hetjukvæðanna, hugmyndafræði þeirra og boðskap
geti tekið saman nokkrar vísur eddukvæða og dróttkvæðar vísur, skilið þær og skýrt vandlega og gert grein fyrir efni þeirra, heimsmynd og hugmyndafræði
þekki algengustu yrkisefni dróttkvæðaskálda
þekki skáldamál dróttkvæða og eddukvæða, heiti og kenningar
geti við lestur dróttkvæða nýtt hugtök sem varða orðaröð og setningagerð
kynni sér upphaf ritmennta á Íslandi, kannist við helstu skólasetur til forna, fræðirit, bókagerð og varðveislu handrita
þekki og geti skilgreint grundvallarhugtök um ritverk miðalda
þekki helstu sérkenni konungasagna, biskupasagna, samtíðarsagna, Íslendingasagna, Íslendingaþátta, fornaldarsagna Norðurlanda og riddarasagna
lesi a.m.k. eina viðamikla Íslendingasögu og geti gert grein fyrir efni hennar og hugmyndaheimi
átti sig á orðaforða, orðmyndun og nokkrum helstu beygingareinkennum fornmáls í þeim textum sem lesnir eru, t.d. beygingu nafnorða, fornafna, lýsingarorða og sagna
geti aflað sér heimilda um tiltekið efni og skrifi um það ritgerð samkvæmt viðurkenndum reglum með eða án samþættingar við aðrar greinar
fái tækifæri til að tjá sig skriflega um efni tengt áfanganum og flytja það munnlega með áherslu á skýra framsögn
þjálfist í upplestri fornra texta með áherslu á viðeigandi hrynjandi
öðlist skilning á því hvaða áhrif fornbókmenntir hafa í nútímanum, t.d. á umhverfi manna og menningu
fái tækifæri til að skoða sýnishorn af fornum handritum
fái tækifæri til að skoða myndbönd og myndlist og nýta sér margmiðlunarefni sem unnið hefur verið í tengslum við fornbókmenntir 
vinni skrifleg verkefni í tölvu og nýti sér orðabækur, handbækur og leiðréttingarforrit við frágang þeirra 
fari á söguslóðir þar sem því verður við komið 

Efnisatriði 
Nemendur kynnast fornum fræðiritum, fornum kveðskap: eddukvæðum, dróttkvæðum, helgikvæðum og sagnadönsum; því helsta í sagnaritun: konungasögum, biskupasögum, samtíðarsögum, Íslendingasögum, Íslendingaþáttum, fornaldarsögum Norðurlanda og riddarasögum. Nemendur lesa vel eina fornsögu og fjalla um hana bæði munnlega og skriflega, túlka hana og bera saman við eigin reynslu og hugmyndaheim. Þeir fræðast einnig um orðaforða, beygingarkerfi og setningagerð fornmáls í tengslum við þá texta sem lesnir eru. Þeir kynnast efni á sviði lista og margmiðlunar sem hæfir áfanganum, svo og efni á Netinu og fá tækifæri til að nota tölvu við frágang verkefna.

Námsmat 
Í áfanganum má t.d. meta einstaklings- og hópverkefni tengd afmörkuðum þáttum fornbókmennta. Námsmat getur að öðru leyti byggst á þekkingu, skilningi og greiningu á íslenskum fornbókmenntum, hugmyndafræði þeirra og málfarslegum einkennum.

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur