Íslenska

ÍSL 202 Bókmenntir og málfrćđi

Undanfari: ÍSL 102 Lćsi, ritun og tjáning

Áfangamarkmiđ
Nemandi
lesi bókmenntatexta frá ólíkum tímum  
fái tćkifćri til ađ njóta listrćns efnis í tengslum viđ lestur bókmennta, t.d. leiksýninga, kvikmynda eđa myndlistar 
geti beitt bókmenntafrćđilegum hugtökum í umfjöllun um bókmenntir 
rifji upp helstu orđflokka og einkenni ţeirra eftir ţví sem viđ á 
geti nýtt sér setningafrćđileg hugtök í umfjöllun um stíl sagna og samanburđ ólíkra texta 
geti nýtt sér málfrćđilegar upplýsingar í orđa- og uppflettibókum og í umrćđu um mál og málnotkun 
fái tćkifćri og öđlist nokkurt öryggi í ađ tjá hugmyndir sínar og skođanir í töluđu máli um efni áfangans 
átti sig á forsendum góđrar framsagnar, s.s. vilja til ađ koma einhverju á framfćri, skýrri hugsun og eđlilegri framkomu 
fái tćkifćri til ađ flytja stutta tćkifćrisrćđu 
skrifi margs konar ritsmíđar í skrefum, ţ.e. međ ferliritun 
átti sig á mismunandi málsniđum og geti nýtt sér ţá kunnáttu í töluđu og rituđu máli 
geti nýtt sér reglur um málnotkun og byggingu málsins í rćđu og riti 
geti nýtt sér stafsetningarreglur í rituđu máli og reglur um greinarmerki 
temji sér notkun orđabóka, handbóka, leiđréttingarforrita og leiđbeininga um frágang 
skođi mismunandi málsniđ í rituđum heimildum, m.a. í blöđum, tímaritum og á Netinu 
noti tölvutćkni til ađ ganga frá textum til verkefnaskila, útgáfu eđa birtingar á vefsíđum 
fái tćkifćri til ađ bćta kunnáttu sína í réttritun ef ástćđa ţykir til 

Efnisatriđi 
Nemendur lesa texta frá ólíkum tímum, t.d. stutta fornsögu (eđa Íslendingaţátt), smásögu og nútímaskáldsögu. Viđ umfjöllun um textana fái nemendur ţjálfun í ţví ađ beita bókmenntafrćđilegum hugtökum eftir ţví sem tilefni gefst til. Jafnframt verđi hugađ ađ ólíkum málfarseinkennum textanna og vakin athygli á ţví hvernig setningafrćđileg hugtök eins og frumlag, umsögn, andlag, nafnliđur, sagnliđur, setning, málsgrein, ađalsetning, aukasetning o.s.frv. nýtast viđ lýsingu og samanburđ ţeirra. Nemendur gera grein fyrir skođunum sínum og athugunum á textunum bćđi skriflega og munnlega, bera söguefniđ saman viđ eigin reynslu og hugmyndaheim og huga ađ ţeirri ţjóđfélagsmynd sem textarnir birta. Nemendur kynnast efni á sviđi lista og margmiđlunar sem hćfir áfanganum.

Námsmat 
Í áfanganum er ćskilegt ađ meta einstaklings- og hópverkefni tengd málfrćđi og bókmenntum, bćđi munnleg og skrifleg. Námsmat byggist ađ öđru leyti á hćfni til ađ nota málfrćđihugtök viđ greiningu texta og umfjöllun um máliđ, skilningi, túlkun og greiningu á bókmenntum og hćfni í réttritun og greinarmerkjasetningu.

 

 





 

Minna letur Stćrra letur

Minna letur Stćrra letur

Minna letur Stćrra letur

Minna letur Stćrra letur

Minna letur Stćrra letur

Minna letur Stćrra letur

Minna letur Stćrra letur

Minna letur Stćrra letur

Minna letur Stćrra letur

Minna letur Stćrra letur

Minna letur Stćrra letur

Minna letur Stćrra letur

Minna letur Stćrra letur