Íslenska

ÍSL 102 Læsi, ritun og tjáning

Áfangamarkmið
Nemandi
þjálfist í að auka leshraða sinn og bæta lesskilning 
lesi bókmenntaverk og ýmsa aðra texta 
fái tækifæri til að velja texta við hæfi í samræmi við áhuga sinn
geti beitt hugtökum bókmenntafræði í umfjöllun um bókmenntir
geti beitt ýmsum hugtökum bragfræði í umfjöllun um bundið mál
geti lesið upphátt fyrir aðra eigin texta og annarra
taki þátt í umræðum og rökræðum
öðlist sjálfstraust til að tala og/eða lesa fyrir framan aðra
öðlist sjálfstraust og öryggi í ræðustól
losi um óæskilegar hömlur og feimni í framkomu og tjáningu þar sem þörf krefur
tileinki sér jákvætt viðhorf til móðurmáls og eigin málnotkunar
fái tækifæri til að túlka línurit, myndir og gröf af ýmsu tagi
geti skipt eigin texta og annarra í málsgreinar, efnisgreinar og kafla
kannist við sérkenni ritmáls og talmáls
skrifi margs konar ritsmíðar í skrefum, þ.e. með ferliritun
temji sér notkun hjálpargagna við réttritun, þ.m.t. orðabækur og leiðréttingarforrit
þjálfist í notkun handbóka í ritun
geti gengið frá texta á viðunandi hátt í tölvu
fái tækifæri til að bæta kunnáttu sína í réttritun og greinarmerkjasetningu ef ástæða þykir til  

Efnisatriði 
Nemendur lesa bókmenntatexta og ýmsa aðra texta, átta sig á eðli þeirra og fá þjálfun í að fjalla um þá í ræðu og riti, túlka þá og bera saman við eigin reynslu og hugmyndaheim. Nemendur fá innsýn í nokkur grunnhugtök bókmenntafræði, s.s. tíma, umhverfi, sjónarhorn, persónulýsingar, boðskap, rím, ljóðstafi og myndmál. Nemendur kynnast fræðsluefni í hljóð- og myndformi og þjálfast í að túlka línurit, myndir og gröf; fá þjálfun í sem fjölbreyttastri ritun, t.d. ritun endursagna eftir upplestri, ritun texta um eigin reynslu og lesið efni og ritun rökfærslutexta. Nemendur gera sér grein fyrir stöðu sinni í stafsetningu og temja sér notkun orðabóka, handbóka og leiðbeininga um frágang og þjálfast í að semja, umsemja og endurrita texta í tölvu í samræmi við leiðbeiningar.

Námsmat 
Í áfanganum má t.d. meta upplestur, myndrænan lestur, nákvæmnis- og leitarlestur, lesskilning og orðaforða, einstaklings- og hópverkefni tengd bókmenntum, ritunarverkefni, stafsetningu og greinarmerkjasetningu og almenna tjáningu og þátttöku í umræðum.

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur