Grunnteikning
GRT 203 Grunnteikning
Undanfari: GRT 103
Áfangamarkmið
Nemandi
- þekki og þjálfist í upplýsingamiðlun með tæknilegum teikningum
- þjálfist í að hugsa af nákvæmni um og vinna myndrænt með viðfangsefni starfsgreina, svo sem á sviði hönnunar og iðngreina
- fái almennan undirbúning fyrir fagbundið teikninám og annað fagnám, svo sem á sviði hönnunar og iðngreina
- þjálfist í notkun teikni- og mæliáhalda
- öðlist aukna þekkingu og færni í lestri og gerð einfaldra tæknilegra vinnuteikninga með hornréttum fallmyndum
- hafi þekkingu og færni til að setja út og teikna flatarfræðileg form og tvívíðar vinnufyrirmyndir
- hafi þekkingu og færni í lestri og teikningu fallmynda af reglulegum rúmfræðilegum frumformum og sneiðskorningum með sérstöku tilliti til greiningar og myndunar raunstærða á línum og flötum
- hafi þekkingu og færni í teikningu yfirborðsútflatningsmynda af reglulegum rúmfræðilegum frumformum og sneiðskorningum
- hafi þekkingu á gildi frumforma fyrir teikningu og mótun viðfangsefna faggreina, svo sem á sviði hönnunar og iðngreina
- efli formskyn sitt
- hafi þekkingu og færni í gerð einfaldra tvívíðra fríhendisteikninga
- öðlist færni til að skipuleggja, árita og ganga frá tæknilegum teikningum og miðla upplýsingum á skilvirkan hátt
1. Efnisþáttur: Flatarteikning, u.þ.b. 3/14 að umfangi námstímans
Nemandi
- kunni flatarteikniaðferðir til að setja út og teikna einföld flatarfræðileg form og einfaldar tvívíðar vinnufyrirmyndir fyrir smíðisgripi með teikni- og mæliáhöldum
- hafi gott vald á skipulagningu vinnublaðs, áritun með teikniskrift og frágangi flatarteikninga þannig að vinna megi eftir þeim
2. Efnisþáttur: Fallmyndun II og yfirborðsútflatningar, u.þ.b. 6/14 að umfangi áfangans
Nemandi
- geti lesið og skilið hornréttar fallmyndir ásamt sneiðmyndum af reglulegum rúmfræðilegum frumformum og sneiðskorningum með sérstöku tilliti til greiningar raunstærða á línum og flötum
- geti teiknað hornréttar fallmyndir ásamt sneiðskorningum af reglulegum rúmfræðilegum frumformum
- kunni gerð hjálparfallmynda og hjálparteikninga til að fá fram raunstærðir á línum og flötum sem ekki birtast sem slíkar á hornréttum fallmyndum af reglulegum rúmfræðilegum frumformum
- kunni gerð yfirborðsútflatningsmynda af reglulegum rúmfræðilegum frumformum og sneiðskorningum eftir hornréttum fallmyndum
- hafi gott vald á skipulagningu vinnublaðs, áritun með teikniskrift og frágangi hornréttra fallmynda ásamt hjálparfallmynd og útflatningsmynd skv. reglum, stöðlum og venjum
- geti mælt upp einfaldan hlut og yfirfært í annan mælikvarða á hornréttri fallmynd
3. Efnisþáttur: Fríhendisteikning II, u.þ.b. 5/14 að umfangi áfangans
Nemandi
- geti teiknað fríhendis tvívíðar útlínumyndir eftir einföldum fyrirmyndum sem horft er á úr fjarlægð á vinnublöð, án annarra mæli- og hjálpartækja en sjón- og blýantsmælingar
- kunni gerð fríhendis vinnuteikninga með hornréttum fallmyndum, sneiðmyndum og málsetningum af einföldum hlutum á vinnublöð, án annarra mæli- og hjálpartækja en blýantsmælingar, skv. reglum, stöðlum og venjum
- hafi gott vald á skipulagningu, áritun með teikniskrift og frágangi fríhendis vinnuteikninga skv. reglum, stöðlum og venjum
Efnisatriði/kjarnahugtök
Teiknifræði, flatarteikning, sneiðskorningur, raunstærðir á línum og flötum, mæli-kvarði, mæli- og teikniáhöld, hjálparfallmynd, yfirborðsútflatningur, tvívíðar útlínu-myndir, teiknireglur, sneiðingar, mælikvarði, mæli- og teikniáhöld.
Námsmat
Mælt er með því að lokamat byggi á verkefnavinnu og skyndiprófum u.þ.b. 40% og lokaprófi 60%. Miðað er við að lokanámsmat byggi að stofni til á sjálfstæðri og óháðri vinnu nemenda. Jafna mætti vægið milli frammistöðu á önn og lokaprófs í þeim tilvikum þar sem gerðar eru meiri kröfur til sjálfstæðis í námsvinnu nemenda en gert er að jafnaði.